Komiði öll sæl og blessuð.

Hvernig væri að koma þessari umræðu í gang einu sinni enn. Ég fékk þessa hugmynd út frá því að ég var að horfa á auglýsingu um myndina “Signs” með Mel Gibson,… Einhverntíman man ég eftir því að hafa lesið um þessa hringi og séð fréttir í sjónvarpinu frá þessum dularfullu listarverkum/(eða hvað). Og hvað finnst ykkur um allar myndirnar og línurnar sem hafa fundist í m.a. í Marakó og víðsvegar um ameríku? Myndir af einhverskonar mönnum/verum sem halda á kylfu og ein sem líkist einhverslags flóknum kertastjaka, þessar myndir sjást ekki nema eða greinast úr nokkuri hæð yfir jörðu. Og hver hefur ekki lesið bækurnar “ Voru guðirnir geimfarar, Gersemar guðanna og á Á geimfari til goðheima eftir Erich Van Daniken eða hvað hann nú hét,… Það er margt í fortíðinni sem bendir til að jörðin hafi verið heimsótt af E.T. eða að ”ERA" sem var fyir okkar þekkingar sögu, að háþróaðar menningarþjóðir hafi búið yfir flug og geimtækni. Og sagan af því þegar sólguðinn RA kom svífandi á sólarnökkva til jarðar að heimsækja forn egypta, … Já þetta er magnað ha.