a_1, a_2, a_3… o.s.frv. eru bara tölur. Þú gætir alveg eins notað a, b, c o.s.frv. nema hvað að hér erum við með óákveðinn fjölda talna svo það er hentugra að nota þessa heiltölustuðla (fótmerkingar) til að merkja hverja tölu með sæti sinni í röðinni. Við vitum ekki einu sinni hvort stafrófið endist til að búa til allar tölur sem við þurfum. Þar að auki stendur seinasta talan, n, fyrir fjölda talna í þessari talnarunu, sem er hentugt. Önnur leið til að líta á þetta er að a sé fall sem tekur...