Vildi bara, í tilefni umræðunnar, henda inn þessari litlu greinargerð, sem ég á reyndar ekki heiðurinn að: “Að díla við táragas Nýir tímar eru runnir upp á Íslandi. Tímar stéttabaráttunnar. Síðasta laugardag, 8. nóvember tók reiður almúginn sig saman um að verjast handtökum og sýndi andúð sína á valdhöfum með eggjakasti. Stríð geysar milli hinna ofurríku og okkar sem viljum félagslegt jafnrétti og beint lýðræði. Vonandi verður það stríð auðunnið og sársaukalítið, en því miður má gera ráð...