Á Arnarneshæðinni
er verið að kreditfæra mann
Og fólkið fær far
með einkaþotunum
til þess að horfa á hann.
Það eru stýrivextir og hiti
og Davíð er órór og grár
Þetta er gjaldþrota maður
með lítið veski
og ekkert hár.
Og drengur með verðbólgin augu
segir við mig :
Skyldi manninum ekki leiðast
að láta kreditfæra sig ?