Þú gerir þér grein fyrir að síðustu sekúndurnar í myndinni eru þannig að skjárinn er svartur og bara öskur heyrast. Gæti verið að þú hafir bara haldið að það vantaði myndina?
Hversu langan tíma tekur þig yfirleitt að fá sendinguna hingað til Íslands og hvernig veseni hefurðu lent í hjá póstinum? Ég hef nefnilega pantað einu sinni áður frá Play og fékk myndirnar bara ca. 4 dögum seinna og var mjög ánægður með það svo ég ákvað að panta aftur frá þeim nýlega. Ég pantaði á laugardaginn þar síðasta og hún var send daginn eftir skv. play, sem sagt fyrir 9 dögum síðan og enn ekkert að frétta af myndunum.
Í engri sérstakri röð: 2001: A Space Odyssey A Clockwork Orange Pulp Fiction Brazil Svo bara Engla Alheimsins til að hafa eina íslenska því ég get ekki hugsað um neina aðra sem á heima þarna. LOTR serían hefur heilaþvegið fólk með sinni gífurlegu markaðssetningu þar sem að er prentað inn í hausinn á þeim að þessar myndir séu bestu myndir allra tíma. Svo þegar einhver dirfist að segja að þær séu ekki góðar ráðast LOTR aðdáendur að honum með kjafti og klóm án þess að gefa nokkra ástæðu. LOTR...
Ég ætla ekki að tjá mig um umræðuefnið en ég ætla að minnast á annað: Ég hef aldrei séð jafnhörmulega stafsetningu. Þú getur varla haldið að fólk taki mark á þér þegar þú skrifar eins og þú sért 6 ára. Það er heldur ekkert samhengi í þessum texta og hann er nær óskiljanlegur.
Ég held nú að það sem að hann sagði var kaldhæðni, þar þar sem það eina sem að margir vita um seinni heimsstyrjöldina(ég veit ekki afhverju þið eruð að kalla þetta „World War 2“, það er fullkomnlega gott íslenskt heiti yfir þetta og miklu flottara) og það sem að gerðist í henni er komið úr bíómyndum og/eða tölvuleikjum. Það að kalla heimsstyrjöldina „World War 2“ ætti að undirstrika það.
Einmitt, höldum móðurmálinu lifandi. Skrifum þess vegna óneitanlega en ekki „óneytanlega“ þar sem að það er dregið af sögninni að neita en ef eitthvað er óneytanlegt þá þýðir í raun að það sé óætt þar sem að það er dregið af sögninni að neyta (t.d. neyta matar). Það er líka skrýtið að þú skulir segja að það sé mikilvægt að halda móðurmálinu lifandi þegar fyrsta orðið í svarinu þínu er „MaD“.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..