Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dorilla
dorilla Notandi síðan fyrir 20 árum, 4 mánuðum 108 stig
“að elska örlög sín, nauðugur, viljugur”

Mjólk, ekki bara drykkur.... (4 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég hef alltaf haft tröllatrú á mjólkinni.Um daginn datt ég inn á síðu sem hafði fullt af fegurðar ráðum þar sem mjólkin var aðal hráefnið.. mjólkin er sem sagt ekki bara góð fyrir tennur og bein heldur einnig fyrir húð og hár…Í mjólkinni er meðal annars sýra sem losar um efnið sem heldur saman dauðu húðfrumunum… og þetta virðist hún góðvinkona mín Kleópatra, Faraó hafa vitað því hún baðaði sig upp úr mjólk daglega… :) Mjólkurbað: Hellið 2 til 4 bollum af mjólk(þá nýmjólk eða beint úr kúnni...

Tvíburarnir Sony og Sonic (18 álit)

í The Sims fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þó að ég sé í sims afvötnun (hef ekki spilað sims í ár eða meira) og sé sorglegt en satt komin með leið á sims, þá langaði mig að segja ykkur frá fyrstu tvíburunum sem ég eignaðist. Það var á hátindi simsáhuga minns fyrir ca. 3 árum. Þá var ég búin að komast á toppin í öllum atvinnugreinum, búin að fá fullt í öllum hæfileikum (metið var 6-12 dagar, man það ekki alveg) og var eiginlega búin að prófa allt sem mér mögulega datt í hug. Nema að eignast tvíbura. Þess vegna bjó ég mér til konu,...

Keyrandi Göngutúr... (22 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég bý í sveit sem er tiltölulega nálægt þéttbýli og það gerist því oft að hundaeigendur koma upp veginn, heim til mín í keyrandi göngutúr. Eigendunir keyra sem sagt í bílnum sínum á meðan hundurinn hleypur á eftir honum, sem þau m.a. ráða ekkert við stundum. Þetta er óþolandi og bara sorglegt finnst mér… af hverju að fá sér hund ef þú nennir ekki að sinna honum.. ég meina það er ekki eins og fólk geri þetta bara á rigningardögum. Nei, það gerir þetta hvernig sem viðrar. Ég meina, þú verður...

anorexíu frá augum aðstandanda. (32 álit)

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég sá grein eftir thoru sem fjallaði um anorexíu og þá vaknaði upp sú kennd hjá mér að skrifa um aðeins um anorexíu. Þannig vill nefnilega til að stóra systir mín hefur þjáðst af þessum sjúkdóm í 6 ár. Það var ekkert eitt sem hratt þessu af stað heldur voru það margir samverkandi hlutir. Systir mín var alltaf svona aðeins öðruvísi, var ekki þessi gelgja eins og vinkonur sínar þegar hún var yngri og varð þess vegna svolítið út undan. Hún var í björgunarsveitinni og fór oft um helgar með þeim...

Stundarkorns sæla (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Stundarkorns sæla Í hverfandi kvöldinu, kemuru inn. Og þínar blóðrauðu varir blíðka mína kinn. Í hjarta mínu ég hamingju finn, um sinn. Því í veruleika veit ég að þú ert eigi minn. dórilla 2004

Skátastarf? (9 álit)

í Skátar fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Frá því að ég varð skátaforingi yfir flokki hef ég verið að “spökulera” um allt þetta skátastarf. Ég er með krakka í 8.bekk(gelgju aldur) sem hafa flest verið í skátunum síðan smákrakkar og ég hef í raun ekki alveg hugmynd um hvað ég á að láta þau gera! Það eru bara tvö ár síðan ég byrjaði í skátunum og ég verð að segja að ég hef ekki skipulega lært neitt(ekki á fundum), maður lærði bara af hinum sem höfðu verið lengur en maður sjálfur og svo þegar maður var í útilegum, þá lærði maður...

Tilgangur Lífs (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Lífið er svo óréttlátt og undarlegt í senn, að enginn hefur skilið Guðs vilja enn. Hvers vegna erum við jörðinni á ef himnaríki er betra fyrir alla þá, sem að hafa lifað í eymd og sorg og hafa ekki efni á því að búa í borg? Var það kannski refsing fyrir okkur menn? Að jörðin sé kannski dýflissa og fangelsi í senn. Að þeir sem bara deyja hafi sloppið burt með sekt, og lifi góðu lífi í himnaríkis nekt? Erum við öll glæpamenn af verstu gerð? Í risastóru fangelsi á flugandi ferð?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok