Þó að ég sé í sims afvötnun (hef ekki spilað sims í ár eða meira) og sé sorglegt en satt komin með leið á sims, þá langaði mig að segja ykkur frá fyrstu tvíburunum sem ég eignaðist.

Það var á hátindi simsáhuga minns fyrir ca. 3 árum. Þá var ég búin að komast á toppin í öllum atvinnugreinum, búin að fá fullt í öllum hæfileikum (metið var 6-12 dagar, man það ekki alveg) og var eiginlega búin að prófa allt sem mér mögulega datt í hug. Nema að eignast tvíbura. Þess vegna bjó ég mér til konu, karl og litla stelpu, svindlaði til að eignast fúlgu fjár, byggði heimilislegt og gott hús og byrjaði svo leikinn. Ég byrjaði á því að gera konuna og manninn yfir sig ástfangin og kyssast þar til þau eignuðust barn, það var strákur sem skírður var Sonic. Svo var stelpan sett í að hugsa um drenginn á meðan foreldranir hoppuðu upp í rúmm(best að gera það sem fyrst því þeim verður að líða súper vel) og eignuðust þar annan dreng, aðeins klukkustund á eftir hinum og var hann nefndur Sony. Þannig eignuðust þau tvíburana, Sonic og Sony. Það var mikil vinna að hugsa um þá báða og hjálpuðust allir í fjölskyldunni að. Mamman vann á dagin og pabbinn á nóttunni, þannig skiptust þau á að passa tvíburuna auk þess sem stelpan þeirra hjálpaði til. Þegar þrír dagar voru svo liðnir uxu þeir úr grasi og hétu báði Sony eftir þeim sem fæddist
á eftir hinum.

Seinna prófaði ég aftur að eignast tvíbura en þá varð það drengur og stelpa. Þar sem stelpan fæddist á eftir stráknum, þurfti strákurinn að bera stelpunafn.

Mig langar líka að vita hvort einhverjir aðrir hafi eignast svona tvíbura og hvort einhver hefur fundið lausina á nöfnunum?? Af öllum Sims áðdáendum get ég varla verið sú eina sem tókst að eignast tvíbura eða hvað??
“að elska örlög sín, nauðugur, viljugur”