Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

doIh8u
doIh8u Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
2.340 stig

Hæfileikar framherja (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Í mínu liði sem ég æfi með hafa framherjarnir einhæfa hæfileika. Þeir hlaupa hratt. Svona framherjar eiga að vera á kantinum þar sem einhæfu hæfileikar þeirra nýtast. Í gær spiluðum við KR og gerðum jafntefli og þessir einhæfu hæfileikar þeirra sköpuðu okkur mörg dauðafæri sem ekki nýtast. Henda svona mönnum á kantinn. Frekar á að hafa framherja sem eru seinir en þurfa bara eitt færi til að skora. Hvernig væri ef Ryan Giggs væri frammi eða Steve McManaman. þannig menn eru bestir á kantinum....

Er kynþáttahatur á Englandi (16 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ætli það sé kynþáttahatur í ensku deildinni. Leikmenn eins og Patrick Viera, Oliver Docourt og Paul Ince eru meðal þeirra blökku leikmanna sem eru duglegir að safna að sér spjöldum. Hvað ætli það sem veldur þessu. Ekki eru þeir miklu grófari en aðrir leikmenn eða hvað. ER það ekki bara hvítir leikmenn sem æsa þá upp með því að segja eitthvað þannig að þeir ráðast á viðkomandi eða eitthvað álíka. Eru kannski dómararnir eitthvað á móti litarhætti þeirra. Kannski Uriah Rennie einn af blökku...

Má ekki hætta (16 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mitt álit er að simpsons má ekki hætta. Ástæðan er sú að The Simpson´s þátturinn er hluti af uppeldi okkar. Hvar værum við án þessa þáttar. Ég byrjaði t.d. að fylgjast með simpsons þegar ég átti heima úti í svíðþjóð 1990. Þegar maður lítur til baka þá finnur maður það út að simpson´s átti hlut í uppeldi okka

Nokkuð óvænt úrslit um helgina (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Spá Rhamsez virðist ekki hafa gengið mjög vel eftir því óvænt úrslit litu dagsins ljós. Derby vann sinn fyrsta sigur og leeds tapaði óvænt heima á móti west ham. Arsenal gerði slæma ferð til liverpool og tapaði fyrir everton hér koma úrslitin: Charlton - Chelsea 2-0 1-0 Jonatan Johansson (35.), 2-0 Martin Pringle (88.). Derby - Bradford 2-0 1-0 Malcolm Christie (56.), Rory Delap (68.). Everton - Arsenal 2-0 1-0 Danny Cadamartari (54.), 2-0 Kevin Campbell (73.). Leeds - West Ham 0-1 0-1 Nigel...

Villa í framherjaleit (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Aston Villa virðist ætla að styrkja framlínu sína en þeir eru að skoða tvo framherja. þá Daniel Fonseca og Hakan Sukur. Villa hefur ekki skorað mjög mikið þetta tímabil svo ekki veitir af

Owen nokkuð líkur Ronaldo (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hægt er að líkja Michael Owen við Ronaldo. Hann skaust upp á stjörnuhimininn 17 ára gamall og lét ljós sitt skína 2-3 næstu ár. Owen hefur ekki flakkað á milli liða eins og Ronaldo. En þeir eiga sameiginlegt að vera alltaf meiddir og geta ekki spilað. Og þegar þeir eru heilir eiga þeir fáranlega leiki og klúðra ótrúlegustu færum(minna hjá Ronaldo samt) en skora svo 3 í þeim næsta. Og meiðast í þar næsta. Þetta gengur ekki svona mikið lengur eða hvað

Prakkarastrik hjá Bart (5 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvað ætli sé það mesta prakkarastrik sem Bart hefur gert. HVað segið þið? Ég segi að það sé þegar 1 apríl var og bart lét hrista bjór svo mikið og Hómer fór í dá. Hvað finnst ykku

Taylor yngir upp (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Peter Taylor knattspyrnustjóri Leicester og landsliðsins til bráðabirða hefur breytt landsliðinu verulega. Hann hefur yngt upp í hópnum og tekið 2 örfætta leikmenn inn. Gömlu mennirnir hjá Arsenal Keown og Adams er horfnir á braut og enginn er eldri en 30. liðið er þannig skipað. Markmenn. Richard Wright(Ipswich)David James(Villa) og hinn ungi Paul Robinson(Leeds). Varnarmenn eru Gary og Phil Neville og Wes Brown(Man U) Garetharnir Southgate og Barry(Villa) Rio Ferdinand(West Ham) og Jamie...

Markmenn deildarinnar (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Markmennirnir í ensku deildinni er flestir sterkir og varla hægt að velja einhverja 5 úr þannig að hér kemur smá um hvern markmann fyrir sig. Arsenal: Þeir mega hafa smá áhyggjur með David Seaman sem er orðinn gamall. Hann virðist hafa misst hluta af hæfileikum sínum sem hann hafði fyrir tveim árum. Hvað varð um Manninger? Einkunn 6 Aston Villa: Eru með fínan markmann og þurfa ekki að hafa áhyggjur af David James svo lengi sem hann fer ekki í sín margfrægu skógarhlaup. Einkunn 7 Bradford: Er...

Markmenn í ensku deildinni (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Markmennirnir í ensku deildinni er flestir sterkir og varla hægt að velja einhverja 5 úr þannig að hér kemur smá um hvern markmann fyrir sig. Arsenal: Þeir mega hafa smá áhyggjur með David Seaman sem er orðinn gamall. Hann virðist hafa misst hluta af hæfileikum sínum sem hann hafði fyrir tveim árum. Hvað varð um Manninger? Einkunn 6 Aston Villa: Eru með fínan markmann og þurfa ekki að hafa áhyggjur af David James svo lengi sem hann fer ekki í sín margfrægu skógarhlaup. Einkunn 7 Bradford: Er...

Besti miðjumaður deildarinnar (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Núna er Kjarri(kamalflos) búinn að gera ítarlega grein fyrir bestu Sóknarmönnum ensku deildarinnar núna er komið að fleirri stöðum. T.d. miðjumönnum. Mikill skortur er á miðjumönnum frá englandi og þá helst örfættum miðjumönnum en þeir eru oftast útlendingar í mörgum liðum. Erfitt er að velja besti miðjumennina en þessir skara Meðal annars fram úr: Ryan Giggs: Einn öflugasti vinstrifótar maður í heimininum og því miður ekki englendingur því mikill skortur er á enskum vinstrifótamönnum. Giggs...

á barnum (3 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Barþjónn í bandaríkjunum leiddist það hversu fúll hesturinn hans var og ákvað að hafa keppni á barnum. Hver sá sem gæti fengið hestinn til að hlæja fengi 50 þúsund dollara. Fannst mörgum þetta athyglisvert og reyndu við þetta en ekkert virtist ganga. Jói sem var staddur í Texas frétti af þessari keppni og ákvað að reyna og fór með hestinn afsíðis og viti menn þegar hann kemur með hestinn aftur skellihlær hann. Barþjónninn lætur Jóa fá peninginn og hann fer sína leið. Árið eftir kemur Jói...

Undarlegt af formúluökumönnum (3 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Formúluökumenn kepptu í knattspyrnu við gamlar ítalskar íþróttahetjur. í liði íþróttahetjanna voru leikmenn eins og Alberto Tomba og Paolo Rossi. Aðalmaðurinn í liði ökumanna var Michael Schumacher og skoraði hann einnig fallegasta mark leiksins með glæsilegu skoti fyrir utan teig eftir góðan einleik. Leikurinn endaði 5-1 fyrir formúluökumenn og verðskuldaður sigur þar á bænum.

Skemmtilegasti leikur deildarinnar (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Skemmtilegasti leikur deildarinnar leit dagsins ljós í ótrúlegum leik þar sem Leeds Utd bar sigurorð af Liverpool á Elland Road. Útlitið var ekki bjart fyrir leikmenn Leeds eftir um 20 mínútna leik en þá voru liverpool leikmenn búnir að skora 2 mörk annað frá Hyypia og hitt frá Ziege. Leedsarar voru ekkert á því að gefast upp og Ziege gerði hræðileg mistök í vörninni sem kostaði það að Viduka skoraði. Góð markvarsla markvarðanna tveggja gerði það að verkum að ekki voru skoruð fleirri mörk í...

"flakkari" (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Stan “the man” Collymore heldur áfram að flakka á milli liða. Hann fór frá nottingham forrest til liverpool, frá liverpool til aston villa, síðan á seinasta tímabili fór hann til leicester og núna er hann farinn til bradford city fyrir ekki eina einustu krónu. Afhverju losa liðin sig við hann á nánast hverju tímabili? Hvert fer hann næsta tímabil? Breiðablik eða hvað

Lukkudísirnar ekki með enskum (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
ensku liðin manchester utd og leeds utd höfðu ekki heppnina með mér í meistaradeildinni í gær. Leedsarar komust yfir gegn barcelona en með smá hjálp dómarans sem bætti við 5 mínútum af venjulegum leiktíma þá sönnuðu leedsarar að aldrei eigi að gefast upp. Þetta jafntefli gæti kostað þá að þeir komist ekki áfram. Manchester United tapaði óvænt fyrir anderlecht og þar virðist vanmat hafa ráðið úrslitum. Vanmát á aldrei að eiga sér stað í fótbolta.

aukapersónur (7 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
talandi um hvaða þættir standa uppúr þá er ég forvitinn um hvaða aukapersónur standa uppúr. Það eru auðvita mjög margar góða sideshow bob ofl

Nýr leikmaður Chelsea (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Chelsea var að kaupa sér enn einn nýjan leikmann miðjumanninn framherjan jesper Grönkjær frá Ajax á 7,8 milljónir punda. Hann ætti að geta reynst þeim góður liðsstyrkur en hvað í ósköpunum eru þeir að kaupa leikmenn þegar þeir hafa svona stóran hóp

Breytingar mikilvægar (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mikil þörf er á breytingum í enska landsliðinu. Í enska landsliðinu er 0 margir örfættir leikmenn, það sýnir breiddina. í t.d. hollenska landsliðinu voru í einum leik á EM 6 örvfættir leikmenn í byrjunarliðinu síðan plús varamenn. Hvernig væri að breyta aðeins til í enska landsliðinu og prófa örfætta leikmenn sem hafa verið að standa sig í sínum liðum. Markaskorar enska landsliðsins virðast eiga mjög erfitt með að skora enda eru þeir ekkert að skora í deildinni hvernig væri að breyta til og...

Nýr þjálfari Englands (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Búið er að skipa Peter Taylor, þjálfara Leicester City, tímabundið í stöðu landsliðsþjálfara Englands í knattspyrnu. Knattspyrnusamband Englands tilkynnti þetta í dag, laugardag. Taylor segist himinlifandi með þetta tækifæri, en hann mun halda áfram að sinna sínum störfum hjá Leicester samhliða landsliðsþjálfuninni. Enska liðinu hefur verið stjórnað af Howard Wilkinson, sem tók við strax eftir að Kevin Keegan sagði af sér í kjölfar tapleiksins gegn Þýskalandi fyrr í þessum mánuði....

Er futurama (4 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Er futurama arftaki simpsons eða er simpsons bara klassískur núna eða hvað. ER simpsons eilífur þáttur sem mun alltaf verða í hjörtum manna? Og er futurama bara tímabundin skemmtun.

Nóg komið af Simpsons (8 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú er nóg komið af persónunum í bili. Leikararnir eru aðalmálið. Án Dan Castalneta, Hank Azaria, Harry Shearer, Julie Kavner. Ef þau væru ekki væri ekki simpsons. HVer af þessum finnst ykkur vera mikilvægastur/vægust?

the perfeckt (5 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri hinn fullkomna Simpsons mynd? Finnst ykkur að það ætti að gera simpsons mynd? Mundi það kannski eyðileggja áhuga allra á simpsons

Hvernig væri ... (1 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mér hvernig hinn fullkomni simpsons þáttur væri? Hafið þið einhverja skoðun á því. Síðan er annað. Hver er besti simpson þátturinn sem hefur verið sýndur og hver sá versti

Arsenalheppnin segir enn einu sinni til sín (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það var ekki að spurja að leikslokum í leik lazio og arsenal. Lazio menn komust snemma yfir en eins og allir vita er arsenal heppnasta lið í heimi og er nokkuð algengt að þeir skori á 85-95 mín og viti menn enneinu sinni gerðist það
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok