Skemmtilegasti leikur deildarinnar leit dagsins ljós í ótrúlegum leik þar sem Leeds Utd bar sigurorð af Liverpool á Elland Road.
Útlitið var ekki bjart fyrir leikmenn Leeds eftir um 20 mínútna leik en þá voru liverpool leikmenn búnir að skora 2 mörk annað frá Hyypia og hitt frá Ziege. Leedsarar voru ekkert á því að gefast upp og Ziege gerði hræðileg mistök í vörninni sem kostaði það að Viduka skoraði. Góð markvarsla markvarðanna tveggja gerði það að verkum að ekki voru skoruð fleirri mörk í fyrri hálfleik. En í síðari hálfleik réðu Poolarar ekkert við Mark Viduka en hann jafnaði í upphafi síðari hálfleiks. Poolarar náðu fljótt aftur forustunni þegar Smicer skoraði. En enn einu sinni gáfust leedsarar ekki upp og með góðum leik Oliver Dacourt og MArk Viduka skoraði sá síðarnefndi 2 mörk í viðbót og þar við sat Liverpool 3-4 Viduka. Góð barátta var i´leiknum og mörg spjöld litu dagsins ljós. Leedsarar geta þakkað línuverðinum fyrir sigurinn sem gaf þeim rangstöðumark. Frábær leikur og einn sá besti sem ég hef séð