Búið er að skipa Peter Taylor, þjálfara Leicester City, tímabundið í stöðu landsliðsþjálfara Englands í knattspyrnu. Knattspyrnusamband Englands tilkynnti þetta í dag, laugardag.

Taylor segist himinlifandi með þetta tækifæri, en hann mun halda áfram að sinna sínum störfum hjá Leicester samhliða landsliðsþjálfuninni. Enska liðinu hefur verið stjórnað af Howard Wilkinson, sem tók við strax eftir að Kevin Keegan sagði af sér í kjölfar tapleiksins gegn Þýskalandi fyrr í þessum mánuði.

Aðstoðarmaður Taylor er núverandi aðstoðarþjálfari Manchester United, Steve McLaren. Þeir félagar munu vinna verkið saman þar til endanleg niðurstaða fæst, en knattspyrnusambandið tilkynnti að það hefði augastað á þremur þjálfurum til verksins og að ráðið yrði í stöðuna fyrir jól. Næsti leikur Englendinga er vináttulandsleikur gegn Ítölum 15.