Án þess að ég sé einhver sérfræðingur að þá minnir mig að ég hafi einhvern tímann lesið eitthvað um þetta og þá að þetta væri lífstíll. Gotharar hrífast af einhverju tímabili í sögunni (man ekki hvaða samt) og elska föt í þeim stíl, skrifa oft ljóð, hlusta á ákveðna tónlist og hafa vissar skoðanir. Þeir eru líka oft með áhuga fyrir hinu dulræna, vampírum, göldrum og öðru slíku, en það er ekki algilt. Þetta er svona sú litla hugmynd sem ég hef um þetta. Endilega leiðrétta mig ef ég hef rangt...