Ég hef tekið eftir því að sumir hugarar hafa verið að plana hugaharrypotterraðapartí í Kringlunni. En samkvæmt mínum heimildum myndu nokkuð margir hugarar koma að lokuðum dyrum. Hérna er tilkynningin frá pennanum:
Við hefjum sölu á miðnætti 15. júlí!
Verslanir Pennans-Eymundsson og Bókabúðar Máls og menningar Laugavegi gefa ekkert eftir og hefja sölu á nýju Harry Potter bókinni; Harry Potter and the Half-blood Prince á sama tíma og verslanir annars staðar í heiminum. Útgáfudagur bókarinnar er 16. júlí og munum við hefja sölu á bókinni á miðnætti föstudaginn 15.júlí í verslunum á Laugavegi, Austurstræti og í Hafnarstræti á Akureyri. Margt undarlegt verður á seyði og skemmtilegar uppákomur, eitthvað sem allir sannir aðdáendur Harry Potter mega ekki láta fram hjá sér fara.
Samkvæmt þessu verða engin þægilegheit. Þið verðið bara að þola kuldann úti;)