Ókey, vegna leiðinda þá ákvað ég að drepa timann aðeins og skrifa hérna smá sem ég er búin að lenda í. Ég veit ekki alveg hvort þú/þið skiljið mig upp á hár þegar greinin endar. Þannig ég bið um engann skítskap því ég er að reyna að gera mitt besta í að skrifa greinar, enda rétt svo 15 ára:]
-Takk fyrir

En allt byrjaði þetta þegar ég skrapp eitt sinn á msn og var þá strákur, sem ég ætla að kalla hér x, og var hann búinn að adda sig inn á msn-ið mitt. Við byrjuðum aðeins að spjalla og svona, frekar erfitt í fyrstu enda er hann tvem árum eldri en ég. En allt gekk samtalið sem urðu af samtölum, því ég talaði við hann á hverjum degji og var hann búinn að lýsa tilfinningum sínum til mín frekar mikið, og ég búin að lýsa mínum smá.
En svo kom stundin sem ég mátti alveg búast við. Ég lokaði útidyrahurðinni heima og leið mín gekk til x. Þetta byrjaði allt frekar vandræðalega því ég byrjaði á að fara í vitlausa götu og út frá því bankaði ég á vitlaust hús. Já heimska ég þurfti þá að hringja í x og spurja hann af hverju hann kæmi ekki til dyra, en ég var þá þrem götum fyrir neðan hans þannig á endanum lenti ég í rétt hús.

Við byrjuðum að horfa á mynd sem endaði með kossi. Þá vorum við víst komin í samband sem gekk svona upp og niður. Nema eitt fimmtudagskvöld endaði sambandið eftir eina og hálfa viku.
Sambandsslitin höfðu þær afleiðingar að ég gjörsamlega hataði hann. Þó svo að ég hafi hætt með honum, en hann kom svo illa fram við mig eftir það.

Þannig ég hélt lífinu bara áfram, byrjaði að deita eitthvað tvo gaura þar á milli. Var ekkert búin að heyra i honum lengi, þar til síminn minn pípti og var ég ekki bara búin að fá sms frá x.
Við spjölluðum þá saman aftur og spjölluðum og spjölluðum, þar til ég fór heim til hans og við byrjuðum aftur saman.

Ég hélt ég væri orðin ástfangin af honum en svo var ekki. Við höfðum voða lítinn tíma fyrir hvort annað. Um helgar var hann að drekka og með vinum sínum á meðan ég var niðri í bæ með allt öðru fólki.
En svo eitt laugardagskvöld fór ég í party með vinum mínum, og x var ekki í þessu party-i.
ókey, allt í lagji með það, vorum búin að vera saman í þrjár vikur og hélt ég að samband okkar mundi enda lengur en nei. Í party-inu var strákur sem lét mig ekki vera og endaði semsagt party-ið með kossi frá honum. Ég varð sár því ég hugsaði aðeins um x. Bar engar tilfinningar til stráksins sem kyssti mig.
Þannig ég fór heim og næsta dag sagði ég x frá þessu party-i og damn. Hann varð öskureiður og sagði að ég hafði haldið framhjá honum. Það var náttúrulega bara hin hreinasta lygi og reyndi að segja honum það en nei, hann skildi það ekki.
Þannig ég fór heim og svo um kvöldið frétti ég að x var niðri í bæ með vinum sinum og var að leita af þessum strák sem hafði kysst mig. X og vinir hans hittu stráka úr þessu party-i og spurðu þá um þetta og það sem þeir sögðu við x og co var það að margir strákar höfðu verið að kyssa mig. Þá varð mælirinn kominn í gang og ég hætti með X eftir að ég frétti þetta um kvöldið því það var greinilegt að hann treysti ekki mér, heldur einhverjum strákum sem x þekkti ekkert.

Tíminn leið og tveir mánuðir liðu þar til ég heyrði loksins eitthvað frá x. Hann sagði við mig að hann væri enn alveg svakalega hrifinn af mér og gæti ekki hætt að hugsa um mig. Ég vildi annars ekkert með hann hafa í sambandi heldur bara sem vin. Ég sagði honum það og hann reyndist skilja það mætavel, þannig við ákvuðum að hittast við mynd enda ekkert búin að hittast í tvo mánuði.
Ég skrapp til hans og þar kysstumst við en endaði með því að ég ákvað að fara heim. Síðar sagði ég við hann að við gætum verið vinir, en gætum samt gert ýmislegt sem vinir gera yfirleitt ekki. Hann var alveg sáttur með það og við héldum áfram að hittast og það gekk í viku.

Svo skrapp hann núna um helgina og kom svo aftur í gærkvöldi. Þá ákvuðum við að hittast því hann var einn heima og ég gekk heim til hans.

Við sestumst niður og byrjuðum eitthvað að spjalla þar til hann rétti mér gjöf. Eg opnaði gjöfina sem reyndist vera hálsfesti sem á stóð ,,i love you''. Ókey ég hugsaði auðvitað bara, ,,hvaað? við erum bara vinir'' en var samt mjög ánægð með þessa gjöf.

Síðan gerðist sú stund sem ég mun aldrei gleyma. Sem sagt mín fyrsta reynsla í kynlífi átti sér stað. Hann var mjög svo góður og blíður við mig, en mér fannst samt eins og eitthvað væri að.

Jú, ókey ég var að gera það með vini mínum sem ég vildi aldrei byrja aftur með. Ég veit að ég er komin í hálfgert ruggl núna, því ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga í. Á ég að ljúka þessu ,,play-friend'' dæmi eða á ég að halda áfram. Sem mun líklega enda þannig að ég mun eiga í sambandi sem ríðufélagi.

Þetta er það sem ég er búin að koma mér í. Frekar ruggluð, en er þetta rétt sem ég er að gera núna?

Endilega segjið mér ykkar álit á þessu öllu:]

Takk fyrir!
Aiight;]