Ég er ekki alveg viss um hvar ég á að setja þennan kork, gæti verið á fleiri stöðum en á deiglunni, en þetta er vinsæll korkur svo…

Ok, gothar eru að mínu mati spes fólk, eða kannski frekar venjulegt fólk sem er frekar spes, ekki neitt á vondan hátt eða þannig. Fyrir mig eru gothar frekar framandi og langt í burtu frá mínum veruleika. En þrátt fyrir það er ég alltaf að hitta fleiri og fleiri gotha allt í kringum mig. Það sem mér sýnist er að allir gothar hafa sameiginlegt er að þeir eru ekki mjög lífsglaðir (flest allir) og með svona distant persónuleika. Ég held að flest allir geti verið sammál mér með þetta, ég veit ekki um neinn sem veit ekki hvað gothi er, eða sem þekkir ekki einhvern gotha.
Þannig er mál með vexti að ég fatta þá bara ekki… hvað er málið? Eru þeir að að tjá sig eikkað, er þetta eikker lífstíll, er þetta bara djók? Ef einhverjir gothar eru að lesa þetta þá væri ég til í að heyra frá þeim, hvað það sé að vera gothi því ég er alveg lost…
Alltaf þegar ég sé goth eikkerstaðar þá velti ég því fyrir mér hvað sé á bakvið allt saman, er þetta eikkað rosalegt mál, er þetta tískusveifla, eða hvað? Er þetta kannski bara eins og að vera chocko eða hnakki eða eikkað? Endilega komið með skoðannir og svör!

P.S. Ef ég er á einhvern hátt að særa einhvern með því að segja eikkað rangt þá vil ég líka heyra það svo ég særi ekki neinn í framtíðinni