Það er ekkert mál að sjá að það er 3und eða 4und eða eitthvað … Bara að telja nóturnar. Það erfiða er að sjá hvort það er lítil, stór, minnkuð eða stækkuð (reyndar ekki minnkuð og stækkuð í svona einfaldri tónfræði)
Ég fann sérstaklega góða aðferð til að læra þetta. Kannki finnst þér það ekki þægilegt en virkar fínt fyrir mig ;) Til að finna tónbil telur þú litlu bilin. Svo gerir þú svona sérstaka töflu sem segir þér hve mörg lítil bil hvaða tónbil hefur 1 lítið bil = hein 1und (ss bara einn tónn) 2 bil = lítil 2und 3 bil = stór 2und 4 bil = l. 3und 5 bil = s. 3und 6 bil = h. 4und 7 bil = stækkuð 4und (þetta er það eina sem þarf að muna, hitt er bara röð) 8 bil = h 5und 9 bil = l 6und 10 bil = s 6und 11...
1748 hjá mér … Ég var með 700 og eitthvað en mér fannst það svo hræðilega ljót tala þannig að ég setti inn símanúmerið mitt :) Mig langar í 680 stigin mín aftur!! :S (flott tala)
Ég er bara að segja að enginn annar en ég getur vitað hvernig ég upplifi hana. Og enginn annar en þú veist hvernig þú upplifir hana. Fyrirgefðu ef ég orðaði þetta illa …
Ég er líka að fara í próf úr 203 á morgun … Reyndar ekki það síðasta í stærðfræði hjá mér (á eftir 6 áfanga í viðbót plús slatta í háskóla ;) (ég stefni á verkfræði) Hvaða bók ertu með? Gangi þér vel í prófunum ;)
Ég var ein af 3 í mínum skóla sem tók öll (við vorum 46 í árgangnum). Skólastjórinn sagði að það væri ekki skynsamlegt að taka öll og flestir tóku mark á honum :S Hann nærri því skammaði okkur 3 sem tókum öll …
Þótt það sé hægt að ákveða að hætta er það ekki þín ákvörðun að vera með þetta. En allavega var þetta það sem ég heyrði að læknir hefði sagt, það eru víst ekki allir hér sammála mér :S
Já. Ég hef einmitt verið að pæla í af hverju þetta er alltaf allt kallað klassík. Reyndar er ég ekkert góð í tónlistarsögu en ég vissi allavega að klassík væri ákveðið tímabil :P
Já … af hverju er nútíma tónlist stundum flokkuð sem klassík? Það er samt ekki alltaf hægt að flokka tónlist. Tónlist er bara tónlist og ákveðnir listamenn spila bara sína tónlist.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..