Sniðugt :) Það er svo flott … T.d. að taka tískuljósmyndir í íslenskri náttúru er flott :) Smá pæling (af því mér leiðist og þú ert eini sem svarar mér) Hvar ætlarðu að læra? Hérna á Íslandi eða fara einhvert út í skóla? Ef þú ert eitthvað búinn að pæla í því :P
Hvernig ljósmyndun? Fréttamaður eða listamaður eða kannski bara taka myndir af fermingarbörnum og þannig :P Pabbi minn er ljósmyndari, hann er allt þetta þrennt :P
Ég borða aldrei nammi í óhófi … Eina sem ég get étið endalaust eru vínber, ís og tyggjó. Ég borða líka svo hægt að mér tækist aldrei að klára marga pakka af ópali :P Ég held að ég sé seif :P
Ég bý í gömlu, stóru húsi. Það heyrast stundum skrítin hljóð uppi á lofti :) Ég er samt ekki hrædd við þetta, þeir geta ekki verið vondir, hverjir sem þetta eru :)
Er það? Ætli það sé nóg til af því í heiminum svo það geti virkað hægðalosandi? Ég gæti auðvitað étið allt ópalið og prófað :P Systir mín er hvort sem er sofandi :) Nei, ég myndi aldrei týma því!
Ég skil þessa þörf hjá þér … En ég verð eiginlega að eyðileggja þetta fyrir þér … Ég á 2 pakka! Eða reyndar á systir mín annan - hún átti 4 og gaf mér einn, en við borðuðum hina 2 :P Þetta er reyndar sykurskert og útrunnið en samt sem áður blátt ópal :D
Nú man ég! Ég ætlaði alltaf að lesa hana því systir mín fékk hana í jólagjöf. Svo truflaði skólinn allt sem ég er að reyna að lesa :S (mikið að lesa í skólanum og ég er með athyglisbrest) Ég verð lengi að ná þessu upp :P
Ég var að pæla í einu. Ég las einu sinni um fleiri gerðir floga og fór að pæla hvort maður fær alltaf eins flog. Færð þú t.d. bara svona flog eða geturðu líka fengið öðruvísi? Mamma mín hélt að ég væri flogaveik þegar ég var lítil :S Ég hætti alltaf að anda … Svo komst hún að því að þetta voru einhvernveginn hræðslu- eða frekjuköst (ég held að það hafi frekar verið það fyrra :P) og ég fékk bara andarteppu … Hætti svo alveg þegar ég var 5-6 ára og ég man bara eftir einu svona kasti …
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..