Ég vinn í sjoppu þar sem það biðja mjög fáir um poka. Þegar fólk kaupir eitthvað örlítið sem passar í venjulegan lítinn poka (ókeypis) sleppi ég því að bjóða því poka. Svo biður fólk stundum um poka undir eitthvað pínulítið. Annars er það regla hjá mér að bjóða fólki poka þegar það kaupir það mikið eða þá kaupir gos.
Ég var einu sinni að afgreiða einhvern útlending sem skildi ekki ensku (þá var ég í Bónusi). Svo var ekki heimild á kortinu og þar sem ég gat ekki gert það skiljanlegt hljóp hann bara út í næsta hraðbanka og ég gat ekkert gert á meðan! Sem betur fer var lítið að gera! Reyndar er það þannig í kassanum þar sem ég vinn núna að maður getur geymt afgreiðsluna, svo tekur maður hana bara úr “biðskrá” þegar manneskjan er búin að ákveða hvort hún eigi að fá sér ís eða eitthvað. Mjög þægilegt þegar er...
Ég fattaði það þegar ég var búin með þetta að maður verður að ýta á lagið fyrir neðan flautusólóið til að heyra, það er einhver ruglingur í þessu. Þetta er sko ekki sóló í lagi, heldur bara heilt “track” sem er bara sóló. Ég veit að þetta er ekki alveg jazz og blús, meira svona blúsrokk en mér datt ekkert annað í hug ;)
“1) Það er að koma haust sem þýðir brúnir og skemmtilega rauð-brúnir litir.. Loksins mín uppáhalds árstíð að koma:D” Svo sammála þér! Og besta við það er að ég fer til Egilsstaða rétt áður en þessi æðislega árstíð byrjar og ekkert er fallegra en haustið á Egilsstöðum! Svo hitti ég aftur fullt af vinum mínum og skólinn byrjar. Bara æðislegur tími. Miðað við vorið, sem er svona þunglyndistími hjá mér :S
Reyndar minnir mig að það hafi verið í byrjuninni á annarri bókinni, eða var það þannig að síðasta atriðið í fyrstu bókinni var sett í byrjunina á annarri myndinni? Eða eitthvað … :P Allavega, fyndið hvað þetta er svipað, ég var ekki búin að fatta það :P
Ég kannast við þetta frumsýningarkikk. Ég fæ reyndar ekki svona þegar ég stíg á sviðið, heldur bara þegar leikritið byrjar. Það er alltaf svo góð stemmning á frumsýningu. En mér líkar ekki það vel að leika :S Ég vil bara vera á bakvið og vera með því mér finnst leiklist æðisleg að öllu öðru leiti :P
Mamma þín þarf kannski að hafa einhvern stuðning og svona, en þú þarft auðvitað líka að hugsa um þig sjálfa. Gerðu bara það sem þér finnst réttast og hvað þig langar að gera.
Já, einmitt. Það væru auðvitað sér korkar fyrir það sem er virkast og svo væri kannski hægt að gera þetta ágætlega virkt áhugamál. Eigum við að láta vefstjóra vita af þessari hugmynd?
Já, ég hlusta eitthvað aðeins á þá, en veit lítið meira en hvað lögin heita. Einu sem ég veit eitthvað um eru Queen, Pink Floyd og BB King, þótt ég hlusti á margt meira. Mér finnst eitthvað svo tilgangslaust að vita meira um hljómsveitir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..