Ég elska eftirfarandi hluti nákvæmlega núna.

1) Það er að koma haust sem þýðir brúnir og skemmtilega rauð-brúnir litir.. Loksins mín uppáhalds árstíð að koma:D

2) Engin hefur leiðrétt málfræðivillurnar mínar í langan tíma(Takk fyrir það, málfræðivillu-leiðréttarar)

3) Ég fékk útborgað um daginn þannig að núna á ég nógan pening til að kaupa alla geisladiskana sem mig er búið að langa í síðan í vetur.

4) Ég er hætt í sumarvinnuni:D:D:D

5) 13 dagar í að skólinn byrji.. Hvort sem það verður skemmtilegt eða ekki þá hlakkar mig samt til að hitta fullt af nýju fólki

6) Ég hef tuggið(?) 95 juicy fruit tyggjóplötur á síðustu 3 dögum(Persónulegt met)

7) Vinir mínir eru loksins allir á Íslandi(nema ein en hún hringir á 10sekúnda fresti svo tæknilega er hún með okkur:D)

8) Ég elska vandræðilegar samræður.. Ég var að fatta það rétt áðan að vandræðilegar samræður eru ótrúlega fyndnar…Næst þegar ég er í fjölskyldupartýi þar sem ég mun lenda í vandræðilegum samræðum þá ætla ég bara að prófa að hlægja og gá hvort einhver eigi ekki eftir að vorkenna mér og fara að hlægja með mér.. sounds like a plan, right?


Núna finn ég ekki fleiri hluti til að elska.

Núna geta nöldrarar nöldrað yfir mér..
Ég er ekki að dissa þig… Hálfviti!