Klisja! En einhvernveginn klikkar þessi klisja ekki. Ég hef séð milljón svona myndir (og sérstaklega ef það eru skuggamyndir með sólsetri) og mér finnst þær nánast alltaf flottar :)
Ég verð því miður að segja að mér finnst þetta ekkert spennandi mynd. Kannski af því þetta er ein af þeim klisjum sem fara hræðilega í taugarnar á mér. Mér finnst bara ekkert spennandi við þessa kirkju nema hún sé “live” (þá meina ég að það er gaman að horfa á hana í alvörunni). Reyndar flottir litir. Bætt við 16. júní 2007 - 13:45 Ég kíkti aftur á myndina og sá þá hvað himininn er flottur og fleira sem væri flott við þessa mynd ef það væri ekki þessi kirkja :P
Af hverju máttu ekki vinna fyrr? Það er heimskulegt að leyfa þér ekki að vinna … Bætt við 14. júní 2007 - 16:37 Skil núna eftir að ég las svör … Samt heimskulegt að mega ekki vinna fyrr en 15 ára. Færðu samt ekki styrk reglulega í staðinn?
Það er samt fylgst með þessu og flestir yfirmenn vilja frekar fá undanþágu en að láta reka sig eða þurfa að reka starfsfólkið. Allavega er mínum yfirmanni illa við að ráða of ungt fólk útaf þessu.
Vinur minn er litblindur. Mig langaði mikið að vita hvernig litblinda virkaði svo ég gerði miiikið af tilraunum. Tók allskonar hluti og spurði hann hvaða litur þetta væri. Þegar ég kom t.d. með eitthvað grænt giskaði hann oft á fjólubláan en þótt hann gæti greint að þetta væri ekki sami litur og eitthvað fjólublátt gat hann ekki greint nákvæmlega hvaða litur. Hann sagði mér líka að litblinda er skortur á ákveðnum frumum í augunum sem greina ákveðna liti. Man ekki nákvæmlega hvernig það var,...
En ef maður er byrjandi er maður kannski ekki til í að borga svona mikið fyrir allt þetta aukadót sem maður þarf í raunninni ekki. Canon IXUS á 40.000 dugði mér bara vel í 2 ár, meðan ég var byrjandi.
Heilbrigðiseftirlitið gæti rekið þig og kannski yfirmann þinn. Nema þú sért með undanþágu. Það eru margir sem afgreiða tóbak af því þeir eru með undanþágu. Ég var búin að gera það í ár áður en ég varð 18 ára.
Það þarf undanþágu og flestir sem reka sjoppur reyna að komast hjá því. Annars kemur heilbrigðiseftirlitið og skammar þá ef það er ekki undanþága (allavega þar sem ég var að vinna).
Fyrst þú ert 15 geturðu varla unnið við afgreiðslu í t.d. N1 því þar þarf oft að geta selt tóbak. En það hlýtur einhver Bónus eða Krónu búð að ráða þig, þær geta ekki allar verið fullmannaðar.
Talaðu aftur við þau. Spurðu af hverju þú varst ekki ráðin og hvort það vanti ekki fólk einhversstaðar. Svo er líka gott að mæta bara og spyrja, ég hef allavega oftast sótt þannig um vinnu. Hvað ertu aftur gömul?
Ónýtur dagur? Hvernig þá? Þarf það að vera eitthvað óhapp eða eitthvað? Er ekki alveg viss hvað ég get gert :S Mig langar allavega að reyna að taka þátt. Hef aldrei náð neinni keppni hérna og það er kominn tími til að taka þátt :)
Prófaðu að sækja um hjá verslunum. Bónus, Krónan, Nettó, Hagkaup, Kaupásverslanir o.fl. eru alltaf að leita að fólki. Þú færð mikið meiri pening þótt það sé bara Bónus eða eitthvað.
Hvað gerði hún, svaf hjá fangavörðunum? Grenjaði eins og smákrakki og pabbi hennar mútaði fangelsinu? Það er ekki eins og það sé erfitt að vera þarna í lúxusfangelsi í 23 daga!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..