Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 34 ára kvenmaður
1.508 stig

Sólgleraugu og regnhlíf (17 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég fékk lánað stúdíó og 5D og dró vinkonu mína með. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera, svo við fundum allskonar leikmuni til að leika okkur með. Gaman gaman :) Ég hef mjög litla reynslu í að nota svona ljós, svo ég veit ekkert hvort ég hefði getað lýst betur. Endilega gefa mér ráð um hvað ég hefði getað gert betur.

"Sumar - Ferðalög" (0 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Tekin á Fisheye 2 lomo myndavél. 400 ASA Kodak Tri-x filma. Ég veit að gæðin eru ekki mikil. Skannerinn fer alltaf illa með myndirnar.

Álit annarra (23 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Fóru einhverjir hérna í inntökupróf í læknadeild í HÍ? Veit einhver hvenær svörin verða send? Ég er farin að hafa áhyggjur af þessu, þarf að vita hvort ég komst inn svo ég geti ákveðið hvað ég ætla að gera í haust … En önnur spurning, bara til allra sem misstu ekki athyglina á fyrri :P Ég útskrifaðist ári á undan flestum vinum mínum og ætlaði að eyða næsta ári í eitthvað skemmtilegt (ætlaði í lýðháskóla en komst ekki inn :/). Ég hefði getað fengið nýnemastyrk í HÍ ef ég hefði ekki verið sein...

Morfís (9 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Það var Morfís keppni milli nemenda og kennara í opnu vikunni í skólanum mínum (ME) í vetur. Ég var beðin um að taka myndir fyrir auglýsingar og tók þessa við einhvern vegg í skólanum, bara með þá birtu sem var í boði.

Stop-motion (13 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég veit ekkert hvort ég er að pirra alla hérna með spurningu sem hefur komið milljón sinnum áður :) … en allavega, ég er með spurningu. Ég er búin að vera í einhvern tíma mikið í ljósmyndun og er búin að átta mig á að videolistin er eiginlega svona næsta listform fyrir mig, langar að prófa eitthvað nýtt og þetta er það sem er mest spennandi. Ég á enga videovél, en ég á myndavél, svo ég ætla að prófa að gera stop-motion. Ég prófaði um daginn að gera eina sem ég setti saman í Adobe ImageReady...

Ósland (7 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég tók þessa mynd fyrir löngu, fannst hún ekkert sérstök á þeim tíma, fann hana svo um daginn og er alveg að fíla hana í botn. Fyndið hvernig maður breytist með tímanum. Tekin í Óslandi á Höfn í Hornafirði.

STÆ203, ÍSL103, ÍSL203 (35 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Getur einhver sagt mér efnið í þessum áföngum? Helst í stærðfræðinni miðað við stærðfræði 3000 bækurnar. Ef einhver á þá bók fyrir STÆ 203 væri vel þegið að fá að vita bara hvað kaflarnir heita. Þarf að tékka hvort ég kann þetta allt. Er eitthvað annað í íslensku 103 og 203 en bara málfræði sem maður lærir? Bætt við 5. júní 2008 - 18:20 Hvað eru eintæk, átæk, gagntæk og oddstæð föll? (og var eitthvað fleira þegar var verið að tala um oddstæð?)

Access is denied (5 álit)

í Windows fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég er búin að vera í vandræðum með tölvuna mína. Hún hrundi um daginn (allt varð svart en samt kveikt á henni, þegar ég reyni að restarta komst hún aldrei gegnum startupið, byrjaði bara alltaf upp á nýtt, líka í safe mode). Er búin að reyna eitthvað repair með diski sem fylgdi með tölvunni (veit samt ekki nákvæmlega hvað það var, vinur minn gerði það). Ég er samt eiginlega búin að gefast upp á að laga tölvuna, vil bara ná í gögnin af henni. Núna er ég búin að fá flakkara hýsingu og setja...

Bráðabirgðaökuskírteini (6 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Frekar undarleg spurning kannski, en ég læt samt vaða. Á einhver hérna bráðabirgðaökuskírteini (svona blað sem maður fær meðan verið er að búa til bleika dótið fyrir mann) og skanna og er til í að skanna það inn fyrir mig? Ég er að gera smá djók, tek auðvitað út nafn og mynd og allt það og set annað í staðinn. Mig vantar bara formið. Ég er búin að vera að leita að svona úti um allt og finn engann sem á þetta ennþá. Sendið mér bara einkaskilaboð ef þið nennið þessu :)

Upphleyptir fæðingablettir (7 álit)

í Heilsa fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Ég er svona manneskja sem fær fullt af fæðingablettum og það eru alltaf að koma nýir, en hingað til hafa þeir allir verið alveg flatir (nema einn, sem er alltaf eins, sem á að vera í lagi, er það ekki?). Svo allt í einu var ég að taka eftir því að einn af þeim stærri er byrjaður að verða upphleyptur og svo er ég búin að finna 2-3 í viðbót sem eru líka orðnir upphleyptir. Er það ekki frekar grunsamlegt að þeir verði allir upphleyptir í einu? Veit einhver af hverju þetta gerist? Ég hef alltaf...

Vanmáttug (6 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum
Ein af fyrstu studio myndunum mínum. Ég var að gera verkefni fyrir MYL222 (ljósmyndun) þar sem átti að taka myndir við nokkur orð, þetta er orðið “vanmáttugur”. Ég hugsaði þetta upphaflega upp við steypuvegg, en ég fílaði þennan græna lit svo ég ákvað að prófa hann :) Eina sem truflar mig er þessi hvíta rönd, en ég gat ekkert gert í því. Canon EOS 5D + 24-105mm f/4 L USM Eitt einhvernveginn studioljós með bouncer / soft box

Bakportrait (20 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum
Canon EOS 400D + 60mm f/2,8

Suðurfjörur (17 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum
Tekin á Suðurfjörum í Hornafirði. Canon EOS 400D + 18-55mm kit linsan.

Ormahreinsun (2 álit)

í Hundar fyrir 16 árum
Hundurinn minn fór í ormahreinsun í morgun. Síðan fór hann í tvo frekar langa göngutúra og þegar hann kom heim fór hann að æla. Ældi nokkrum sinnum og var frekar slappur. Honum virðist ekki líða vel. Haldið þið að þetta sé eðlilegt eftir ormahreinsunina eða hvað? Á ég að hafa áhyggjur?

Textar (3 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 16 árum, 1 mánuði
Ég er að fara að gera verkefni í listaáfanga þar sem ég á að velja texta og taka 8 mynda seríu við hann. Mig langar að nota íslenskan texta en þekki eiginlega ekki marga, engan sem mér dettur í hug sem ég gæti notað. Ég er þannig að ég hlusta yfirleitt ekki á textana í lögum heldur tónlistina. Dettur ykkur eitthvað í hug? Eitthvað myndrænt. Eða bara uppáhalds textinn ykkar? :)

Hjarta (1 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 1 mánuði
Ég var að leika mér með sprey um daginn og þetta kom út. Ég veit að hjarta er ekki mjög frumlegt, en þetta var það eina sem mér datt í hug … Hún er nærri því alveg svört fyrir utan hjartað, en hún kemur einhvernveginn brún út í tölvu. Áferðin sést náttúrulega illa. En það verður að hafa það :) — www.flickr.com/aegishjalmu

Enskutími (103 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 1 mánuði
Ég er svo pirruð út í enskukennarann minn að mig langar að fara að gráta. Í fyrsta lagi er hún frá Austur-Evrópu. Hún er með undarlegan hreim, getur ekki borið fram nema örfá orð og ég skil oft ekki orð af því sem hún segir. Hún skilur ekki heldur nemendurna heldur skáldar bara það sem við segjum. Ef ég spyr hana að einhverju svarar hún ekki spurningunni, heldur svarar bara út í loftið um efnið. Hún tekur líka fyrir ákveðna nemendur og spyr að öllu. Ég þoli ekki þegar kennarar gera það. Það...

Hlauptu! (3 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 1 mánuði
Vinkona mín og hundurinn minn að hlaupa um úti :) Endilega gagnrýnið. Ég er ekki alveg ánægð með litina í þessu, en samt gat ég einhvernveginn ekki lagað hana betur.

Dropar (15 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Þetta eru einfaldlega vatnsdropar á flakkaranum mínum. Vinkona mín var að leika sér með vatn … Tekið á Canon EOS 400D með 60mm macro linsu Flickr

Einfaldar uppskriftir (5 álit)

í Matargerð fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Vitið þið um eitthvað einfalt og gott, sem er hægt að gera án þess að hafa bakaraofn (er með eldavél)? Þarf helst að vera einfalt og ódýrt og helst ekki úr hráefnum sem geymast illa eða notast lítið. Semsagt, ég vil geta keypt allt áður en ég elda og ekki þurfa að geyma afganginn. Ég er á heimavist og hef þess vegna takmarkað pláss eða not fyrir afganga :P Endilega segið allt sem ykkur dettur í hug. Ég veit að ég hefði átt að leita í gömlum þráðum og greinum áður en ég spurði, en ég bara...

Brrrr ... (109 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Mér er kalt! Mér er búið að vera kalt nánast stanslaust í 2-3 vikur! Ég get ekki hækkað of mikið á ofnunum eða sleppt því að opna glugga því þá kemur of þungt loft og herbergisfélagar mínir eru ekki eins sáttir við það og ég. Ég er farin að sofa í tvöföldum náttbuxum, með 2 auka teppi og í tvöföldum ullarsokkum. Annað hvort er ég farin að þola kulda miklu verr en áður eða þá að það verður bara miklu kaldara í mínu rúmi en hinum í herberginu. Ég þoli ekki Ísland á veturna :( Og meira væl: Ég...

Sprungnar æðar (15 álit)

í Heilsa fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Mig er búið að klæja og svona eiginlega svíða í augnkrókinn (alveg við nefið, heitir það ekki augnkrókur?). Svo kíkti ég í spegil áðan og sá að það eru fullt af sprungnum æðum á þessum stað. Af hverju gerist þetta? Springa æðarnar bara upp úr þurru? Venjulega sé ég þetta bara þegar ég er búin að vera með linsur eða er mjög þreytt.

Neyðarblys (12 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Ég var því miður of sein að taka þátt í keppninni, en mig langar samt að senda inn eina áramótamynd. Það var kveikt á neyðarblysi úr skipi í garðinum mínum og það kom þessi flotta rauða birta.

When you're smiling ... (10 álit)

í Hundar fyrir 16 árum, 2 mánuðum
… the whole world smiles with you. — Þetta er Sammi, þarna 6-7 mánaða, íslenskur fjárhundur. Hann var svo góður að brosa til mín eftir að ég hafði leikið við hann aðeins. Hann verður svo ánægður!

Hafið þið lesið ... (24 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Sjálfstætt fólk, To Kill A Mockingbird eða Angela's Ashes? Eru þetta þungar bækur? Ég veit að mörgum finnst sjálfstætt fólk erfið útaf stafsetningunni en hún fer ekki í taugarnar á mér (las hluta af Heimsljósi einu sinni). En hinar, veit einhver hversu langar eða hversu þungar þær eru? Og enn mikilvægara, eru þetta eitthvað skemmtilegar bækur? Ég hef séð myndina Angela's Ashes og fannst hún góð. Ég er semsagt að fara að lesa þessar bækur á þessari önn í ÍSL 503 og ENS 403 (þar fara...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok