Sjálfstætt fólk, To Kill A Mockingbird eða Angela's Ashes?

Eru þetta þungar bækur? Ég veit að mörgum finnst sjálfstætt fólk erfið útaf stafsetningunni en hún fer ekki í taugarnar á mér (las hluta af Heimsljósi einu sinni). En hinar, veit einhver hversu langar eða hversu þungar þær eru?

Og enn mikilvægara, eru þetta eitthvað skemmtilegar bækur? Ég hef séð myndina Angela's Ashes og fannst hún góð.

Ég er semsagt að fara að lesa þessar bækur á þessari önn í ÍSL 503 og ENS 403 (þar fara jólabækurnar sem ég ætlaði að lesa :/). Ég les hægt en get alveg náð upp hraðanum ef þetta er áhugavert, en mig langaði bara að vita hvort ég ætti að taka frá tíma í að lesa þetta, kvíði eiginlega fyrir að þurfa að klára þær …