Vitið þið um eitthvað einfalt og gott, sem er hægt að gera án þess að hafa bakaraofn (er með eldavél)?

Þarf helst að vera einfalt og ódýrt og helst ekki úr hráefnum sem geymast illa eða notast lítið. Semsagt, ég vil geta keypt allt áður en ég elda og ekki þurfa að geyma afganginn.

Ég er á heimavist og hef þess vegna takmarkað pláss eða not fyrir afganga :P

Endilega segið allt sem ykkur dettur í hug.

Ég veit að ég hefði átt að leita í gömlum þráðum og greinum áður en ég spurði, en ég bara nenni ekki að fara í gegnum allt og gá hvað passar við þessar sérþarfir mínar :)