rugl… Ef ég þekki persónuna ekki neitt þá fer ég ekki að sýna samúð með krossi á msn, mér þykir það frekar vanvirðing við hann að setja kross við msn-ið mitt þegar það er svo innantómt og þá sérstaklega af því að ég pottþétt er ekkert að pæla í þessu, bara gera eins og hinir. Ef ég hinsvegar þekki persónuna, þá set ég ekki kross heldur. Ég myndi sýna samúð á annan máta, t.d. með því að mæta í jarðarförina.