Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Confusius eiginlega líka, samt er ekki hægt að segja að Kíverjar hati konur. Þó svo að uppafsmaður einhverra stenfnu hafi haft einar skoðanir á hlutunum þá þýðir það ekki að fylgjendur þeirra stefnu kóperi skoðanir frumherjans alveg óbreyttar. Allavega hef ég ekki fundið fyrir neinu gyðinga- og kvennhatri meðal eintakra mótmælenda. En svarinu þínu óviðkomandi er það rangt að sagja eina stenfu betri eða verri en aðra. Það eru ekki stefnunurnar sjálfar sem ákvarða gæði hennar, heldur fólkið...

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hver segir að aðalatriði hvers trúarbragðs séu í aðaltrúarrit þess? Ég myndi einmitt ætla það að aðalatriði hvers trúarbragðs séu þau sem best berast á milli kynslóða. Það stendur margt í Biblíunni sem er gjörslamlega hunsað af átrúendum hennar. Ekki myndi ég nú kalla það aðaláherslu. Tökum stjórnmálaflokk sem dæmi: Það stendur kannski í aðalstefnuskrá flokksins frá 1942 að flokkurinn vilji fyrirbyggja það að nokkur svertingi muni nokkurntíman setjast að á Íslandi. En í dag hefur þessi sami...

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Trúarbrögð eru líka ein af meiginástæðum þess að friður náist, stríð brjótist ekki út, soltir fái að borða og fátækir fái ölmusu. En í rauninni eru trúarbrögð ekki ástæða þess að fólk fer í stríð, heldur villitrúarmenn innan tiltekna trúarbragða

Re: Gjöf til þín :-)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
hehe, mun skemmtilegra en hinn kosturinn

Re: Gjöf til þín :-)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
takk

Re: Orkuframleiðsla á Íslandi

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég er alveg sammála þér, eiginlega öll rökin sem hafa komið hérna fyrir ofan finnst mér byggjast á misskilningi. Fólk hugsar um verga þjóðarframleiðslu. Peningur kemur inn í samfélagið, en hvers virði er peningur ef hann nýtist bara í að öðlast meiri pening? Fólk hugsar um atvinnu. En til eru margar atvinnugreinar sem fylla ekki andrúmsloftið af gróðurhúsalofttegundum og drekkja einstakri náttúru. Í Snæfellsbæ ætla menn að nota vatnið sem rennur frá fjöllum til að fylla flöskur og selja til...

Re: Könnun

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Því dauðarefsingar eru ómannúðlegar, ókristilegar, ógeðslegar, óþarfar, óréttlætanlegar, óraunhæfar, óafturkræfar, ófyrirgefanlegar, ónútímalegar, ómannlegar, óvestrænar og óbærilegar. Bætt við 9. desember 2006 - 00:04 Og til að bæta gráu ofan á svart, þá eru þetta sömu refsingar og vinur okkar Saddam notaði. Öll viljum við líkjast honum, ekki satt?

Re: Könnun

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað fáið þið útúr því að sjá aðra þjást?

Re: "Sannleikurinn um UNICEF"

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Því er ég líka sammála að hluta, en frjáls viðskipti duga skamt ein og sér og því óþarfi hjá kauða að láta það bitna á saklausum góðgerðasamtökum

Re: The war in Iraq

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Alveg sammála, það er á allra vitorði að talíbanar (vondikallinn) ræður enn lögum og ríkjum yfir öllum suðurhluta landsins. Svo slæmt er ástandið að NATÓ (góði kallinn) sér sig knúinn til að varpa sprengjum úr lofti á íbúðarhús á meðan saklausar fjölskyldur eru þar í fasta svefni.

Re: The war in Iraq

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Auðvitað er allt sem BNA gerir í Írak og Afganistan vitlaust. Stríð ER vitlaust

Re: Nýjustu rannsóknir og staðan í dag.

í Dulspeki fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ókei, upp til hópa finnst mér þetta vera argasta kjaftæði, en það er mitt álit og hver og einn hefur fullkominn rétt til að halda það sem hann vill. Mér langar samt að blanda mér í þessar umræður. Í fyrsta lagi. Hvað er þessi „svonefndi annar dauði“ og fyrst maður hefur frjálst val, hver vegna má maður þá aðeins velja á milli Krists og Satans? Hvers vegna ekki Shiva, Múhammeðs eða Jóns Gnarr? Þú fullyrðir að myndbirting Guðs sé í gegnum ýmis trúarbrögð. Ég hélt þá að þetta væri þá eitthvað...

Re: Fréttayfirlit dagsins.

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég ætla að hrósa þér fyrir þessa fínu grein. Ég er mjög sammála henni. En mér langar að staldra aðeins við Kofi Annan. Mér finnst hann hafa staðið sig með eindæmum og ég vona að eftirmaður hans deili hugsjónum sínum með Kofi Annan. Það sem að Kofi vantaði samt var þessi rödd. Bandaríkin gagnrýndu hann, ég veit ekki hvað oft, eftir að Bush tók við og orð hans voru virt að vettugi í stríðsmangri Bandaríkjamanna. Ég held líka að hann sjái svolítið eftir því að hafa ekki verið sterkari á meðan...

Re: Hárið

í Leikhús fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hehe, ég á einhversstaðar gömlu uppsetninguna á snældu. Það er eitthvað sem gerir það meira heillandi að hlusta á snældur en geisladiska

Re: "Sannleikurinn um UNICEF"

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þú ert þó ekki að taka mark á einhverju sem kemur frá Frjálshyggjufélaginu? Lausnin á vanda Afríku eru ekki rauð nef heldur frjáls viðskipti. Ekkert annað. Lélegur áróður eru einu orðin sem fá þessu lýst

Re: Spurningar um Alþingi

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
og ef að fólk kýs hann þá sýnir það bara að þeim finnst það líka. Það er undir sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi komið. Og veistu hvað þeir eru lítið brot af þjóðinni?

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Pólskan kennara? Mér finnst það bara sniðugt, fyrst það er alltaf verið að tala um hve illa 2. kynslóð innflitjenda gengur yfir höfuð í námi. Þá geta pólsku krakkarnir lært á sínu eigin móðurmáli á meðan hinir krakkarnir læra einhvern sora, eins og dönsku.

Re: Hækkun bílprófsaldurs

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mín skoðun á þessu er sú að ríkið er hreinlega of nískt til að sinna almennilegri löggæslu á vegum landsins. Fólk (ekki bara ungmenni) kemst upp með að aka langt yfir hámarkshraða á svæðum þar sem lítið er um löggur aftur og aftur. Ég hef heyrt og séð dæmi um marga staði þar sem fólk monntar sig á að hafa náð x mikklum hraða en á þessum sömu stöðum hef ég aldrei heyrt talað um að nokkur sé stoppaður. Svo er líka málið að gamla fólkið sem sér um löggjafavaldið er orðið svo langþreytt á öllum...

Re: Hækkun bílprófsaldurs

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvar eru feministarnir núna? ef þetta er satt þá.

Re: MISTÖK- loksins fólk sem studdi íraksstriðið byrjað að viðurkenna mistökin.

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta er hinsvegar orkufrek framleiðsla - og sem dæmi þá myndi það ekki duga okkur íslendingum að virkja hér allar ár og læki til þess að sjá sjálfum okkur fyrir vetni.. Rangt. Samhvæmt orkuriti sem ég sá á vísindavefnum er olíunotkun Íslands rúmlega 60% meiri en orka sem er notuð frá vatnsaflsvirkjunum fyrir kárahnjúka. Og ef reikningarnir mínir standast þyrfti að virkja tæp 11 TWH til að mæta allri olíuþörf landans. En þær vatnsaflsvirkjanir sem er talið haghvæmt að virkja nema 30TWH....

Re: MISTÖK- loksins fólk sem studdi íraksstriðið byrjað að viðurkenna mistökin.

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Lýðræði eða ekki lýðræði, hvaða gagn er af lýðræði ef vald ríkisstjórnarinnar nær ekki út fyrir Bagdad?

Re: MISTÖK- loksins fólk sem studdi íraksstriðið byrjað að viðurkenna mistökin.

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var heldur ekkert að tala um að Gandhi hefði mótmælt til að Indland myndi leggja niður herinn sinn. Ég var einfaldlega að benda á klassískt dæmi sem sýnir að mótmæli virka oft betur en hernaðarbeiting. En fyrst þú hefur efasemdir um sameinuðu þjóðirnar þá er aðeins liðnir nokkrir mánuðir frá því að þau samtökin komu síðast á friði í Líbanon með einfaldri áliktun um vopnahlé. Þar var það einmitt bandamaður einna af þessum veto-veldum sem voru árásaraðillinn. SÞ virkar bara mjög vel, þó...

Re: Bestu vinir Bjössa Bjarna og Co

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
1. Íslendingar hafa ekki raunverulegan óvin síðan… Ég man ekki hvenar, ég leifi þér að botna þessa setningu. Og þó þú skylgreynir sovétríkin sem óvin þá hefþu þeir aldrei ráðist á Ísland þó kaninn hefði ekki verið hérna því ef þeir hefðu verið svo vitlausir að láta það hvarfla að sér þá hefðu Sameinuðu Þjóðirnar stöðvað það í fæðingu. Svo að Íslendingar búa í „ofvernduðu umhverfi“, eins og þú kallar það, verndað af SÞ og alþjóðasamfélaginu. 2. Þegar allt kemur til alls er svo til kallað...

Re: Bestu vinir Bjössa Bjarna og Co

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvernig ætla ég að slátra óvinaárásaliði án þess að hafa her? Við einfaldlega gerum þá þörf óþarfa með því að eignast ekki óvini. Ég skil ekki hvernig þú getur sett samansemmerki milli gleði og ánægju og helling af mönnum með byssu. Og með reynslunni var ég að tala um erlenda reynslu. Eins og m.a. Ísraelsher, her N-Kóreu, her Saddams og her Búrma sem svífast einskis með stöðugum hótunum og beitingu á hervaldi á meðan það mætti ná betri árangri með almennri umræðu í alþjóðapólitík. Og svo...

Re: MISTÖK- loksins fólk sem studdi íraksstriðið byrjað að viðurkenna mistökin.

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Gandhi fékk betra Indland með því að mótmæla og það er greinilegt að þú hefur aldrei heyrt talað um Sameinuðu Þjóðirnar sem hafa það einmitt sem markmið að uppræta og koma í veg fyrir stríð. Þær myndu eflaust gera e-ð ef einhver myndi gera sig góðan með að ráðast á herlaust land
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok