Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: fíkn, 2 skoðanir

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Reyndar var ég aldrei að tala um erfitt líf, það ku hafa verið TheGreatOne. En það skiptir víst litlu máli því síðast er ég vissi áttu fíklar erfitt líf, hvort sem það sé banni eða ólöglegu fíkniefnunum að kenna.

Re: fíkn, 2 skoðanir

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hinn kosturinn er líka ósangjarn fyrir hinn almenna borgara sem vill lifa í friði frá fíkniefnadjöfullinum

Re: fíkn, 2 skoðanir

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
skuggi85 Þú refsar ekki fyrir glæp áður en hann gerist. Nei, en þú reynir að fyrirbyggja glæp áður en hann er framin, slíkt gerir maður með lögum, fræðslu og áróðri.

Re: fíkn, 2 skoðanir

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Sumsé… Það er ekki efninu sjálfu að kenna að fíkillinn sé háður, heldur banninu. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt

Re: Saddam og Chirac

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Allt í lagi ég skal taka þetta til baka og segja frekar: „SÞ veit það og þess vegna þertóku samtökin fyrir innrás í Írak. Ekki vegna þess að einhver frakki var vinur Saddams.“ Þó svo að fjöldamorð og þjóðernishreinsanir hafi verið staðreynd, þá hefur það sýnt sig að stríð er ekki til þess að bæta ástandið. Fjöldin allur af fólki er reiðubúið að drepa saklausa borgara fyrir málstaðinn. Ef rétt hefði verið staðið að verki, hefði þessi hópur ekki verið til. Stríð getur ekki talið friðsamlegt heldur.

Re: Hvað finnst fólki um þennan trúð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Slíkt virkar á nákvæmlega sama hátt og lyfleysur. Ef þú trúir ekki að þetta geti ekki virkað, þá sleppir þú því að horfa á þetta. Einfalt. Sjálfum myndi ég aldrei mæta á svona. En það er greinilega fullt af fólki sem trúir á svona og því ekkert sjálfsagðara en að svona „trúðar“ bjóði upp á svona „lækningu“

Re: Saddam og Chirac

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvar er skömmin bak við þetta? Menn ná miklu meira fram í krafti vinnáttu en óvináttu. Skömmin var þá hellst að frakkarnir skuli þá ekki hafa notað þessu vináttu til að koma í gegn lýðræðislegri stjórnarháttum í Írak. Hefði niðurstaða SÞ orðið öðruvísi ef Saddam ætti ekki svona öfluga vini? Eflaust ekki, það er ekki í verkahring SÞ að koma af stað stríði. Hvers vegna heldurðu að SÞ sé svona trekt að senda friðargæslulið til Súdan? Auðvitað vegna þess að stjórnvöld þar eru mótfallin komu...

Re: Hvað finnst fólki um þennan trúð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Vissurðu það að það er líkaminn sem læknar sjálfan sig, töflur, meðul og annað slíkt er bara einn liður í að hjálpa líkamanum að lækna sig. Bænir, hugleiðing, jóga, nálastunga er einnig liður sem hjálpar líkamanum að lækna sjálfan sig. Það hefur verið sannað að lyfleysur (sem er lítið annað en sykurupplaus í pilluformi) geta, í sumum tilfellum, virkað betur en raunveruleg lyf. Þá á þeirri forsendu að persónan sem tekur inn lyfleysuna trúir í fullri alvöru að þetta muni lækna hann. Þessi trú...

Re: Umhverfisvandamál

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
http://en.wikipedia.org/wiki/Image:2000_Year_Temperature_Comparison.png Er þetta eðlileg breyting eða er það bara hreinasta tilviljun að um leið og iðnbyltingin hefst byrjar hitastigið að hækka stjarnfræðilega mikið? Í Bangladesh ferst fjöldin allur af fólki sökum þess að monsún flóðin verða verri og verri með hverju ári. Maður þarf bara að fylgjast með fréttum hvert haust til að sjá að hitabeltistfellibylirnir verða kröftugri, en sjávarhiti hefur bein áhrif á kröftugleika fellibyla. Og ekki...

Re: Umhverfisvandamál

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Af hverju bara höfuðborgarsvæðið og keflavík, ég myndi vilja sjá lestarkerfi taka við mestum af þungaflutingum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þ.e. Frá reykjavík um Suðrnesin og Þorlákshöfn, svo línu frá Selfossi til Akureyra með viðkomu í öllum þéttbýliskjörnum í leiðinni. Það er löngu orðið tímabært að Ísland taki þetta upp, íslenskt rafmagn er mun ódýrari kostur en bensín, svo er þungaflutningur um þjóðvegina stórhættulegt fyrirbæri sem verður að minnka. Að ekki sé minnst á sparnaðinn sem...

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Já, það eru til margar hliðar á þessu. Og þó þrælgaman að rökræða um þetta

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Trúarbrögð, rétt eins og öll önnur fyrirbæri mannana, eru ekki altækt á neitt. Þó svo þau hjálpi sumum, er ekki víst að þau hjálpi öðrum. En eins og þú benntir réttilega á þá hafa trúarbrögðin ekki hjálpað til að binda enda á Ísrael/Palestínu átökin, en ég get ekki trúað öðru en að trúin hafi hjálpað einstöku fólki sem á við sárt að binda einmit vegna þessa átaka. Og sennilega hefur hún hjálpað einhverjum að fyrirgefa óvininum í einstaka tilvikum. Ég á líka mjög erfitt með að finna stríð þar...

Re: Orðasafn!

í Tungumál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Esperanto (h kemur í stað hats) Góðan dag = Bonan tagon Gott kvöld = Bonan vesperon Góða nótt = Bonan nokton Hæ = Saluton Ég heiti = Mia nomo estas… Ég á heima = Mi vivas en… Ég er (x) ára gamall / gömul = Mi estas dudek agha Hvað heitir þú? = Chu via nomo estas? Hvar býrð þú? = Chu vi vivas? Hvað ertu gamall / gömul? = Kiom agha vi estas? Bless = Ghis

Re: Abu Grahib

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Það hefur margt breyst síðan í seinna stríði. T.d. er núna ríkjandi hugsunarháttur að stríð er óþarfa hlutur sem verður að fyrirbyggja (eða allavega í hinum „siðmenntaða“ heimi). Saddam var mjög vondur leiðtogi og því ekkert sem átti að vera í fyristöðu að koma honum frá völdum. En eins og sameinuðu þjóðirnar vildu meina að það voru til leiðir sem myndu ekki leiða til stríðs. En það er víst of seint að vera að velta sér fyrir þeim leiðum núna fyrst það er búið að vera stríð í yfir 3 ár.

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hitler notaði líka kanslaraembættið sitt til að kynda undir hatur, er þá kanslaraembætið vondur hlutur? Og að ekki sé talað um fjölmiðla, fjölmargir vondir menn nota fjölmiðla til að kynda undir hatur, ekki eru fjölmiðlar illt fyrirbæri sem gerir ekkert nema að stía fólki í sundur og skapa glunduroða.

Re: Gamalt kínverskt ljóð um konur

í Ljóð fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Komið frá vörum Confusiussar? Alltaf findið líka að glugga í 1001 nótt og sjá sama boðskap

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Deilan milli Palestínu og Ísrael er svo sannarlega ekki trúarlegs eðlis, þar er einn samfélagshópur að kúga annan. Svona svipað og var lengi vel á Írlandi. En það var ekki það sem þú varst að tala um. Og svo ég svari þér þá hafa sum trúarbrögð vitaskuld fært átrúendur þess fjær átrúendum annara trúarbragða, en málið er að þau ættu ekki að gera það. Eins og málið standa í Palestínu, þá eru vondir menn að nota trúarbrögðin till þess að kynda undir hatur hjá öðrum trúarbrögðum. Þú getur líka...

Re: Heimspeki.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Fjörutíu og tveir sagði einhve

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvað meinarðu?

Re: ljóðstafir???

í Ljóð fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Að ég best man, þá er þetta ort í ljóðhætti, þar eiga fyrstu tvær línurnar að stuðla og svo eiga þriðju og sjöttu línurnar að vera sér um stuðla. En málið með þessi gömlu eddukvæði er að mörg þeirra hafa brenglast eitthvað, mér sýnist það hafa gerst með fyrstu tvær línurnar hérna, mér gæti líka skjátlast. en… Hrörnar föll, sú er stendur þorpi á, hlýt-at henni börkur né barr. Svo er maður, sá er mannigi ann. Hvað skal hann lengi lifa. Ég held að þetta sé rétt.

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
1. Fátækir fá ölmusu: Gjöf á ölmussu er ein af fimm stoðum Íslam, Hjálparstofnun kyrkjunar hefur hjálpað mörgum fátækum í gegnum tíðina. 2. Soltnir fái að borða: Svipað og í númer 1 og að auki hefur trúin á Guð (Nirvana hjá Hindúum og Búddistum) styrkt marga sem eiga við sárt að binda, óháð því hvort hann sé til í alvöru. 3. Komið í veg fyrir stríð: Trúarbrögð geta fært fólk nær hvort öðru og hjálpað því að skilja hvort annað, svo eru mörg trúarbrögð sem beinlínis boða friðarboðskap (d:...

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nei nei, ég var aldrei að segja að VG aðhyllist ekki Marxisma, hins vegar eru þessar stefnur álíka fjarskyldar og XD og Spencerismi.

Re: Samkynhneigð í Biblíunni, hluti 1

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Lítið sem ekkert, en markmiðið með þessari grein er, tel ég, frekar að hrekja röksemdir þeirra sem afneita samkynhneigð út frá biblíunni

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Allt í lagi, tók ekki eftir því:)

Re: Eruði rétt skráð?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ætla ekkert að setja út á svarið í heild, en ég vill benda á að það að bendla VG við Marx er svona álíka og að bendla XD við Spence
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok