Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Mengunarslysið í Bhopal

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ekki nóg með það, heldur eru þeir drykkir sem þeir selja í Indlandi með óhóflegt magn af skordýraeitri. Svo og eru þessi fyrirtæki, auk hergagnaframleiðslufyrirtækja, þau fyrirtæki sem álfyrirtæki eins og Alcoa og Rio Tinto setja mark sitt á og með hjálp Íslands eru þau skrefi nær þessum áformum.

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Allt í lagi, ég játa mig sigraðan :)

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Aha, ég var að taka undir með þér. Samt held ég að 3. heimsstyrjöldin verði aldrei háð sem slík. Mannkynið hefur hætt þeim ósið að lýsa stríði á hina og þessa, en þess í stað höfum við byrjað að beita „réttmætri valdbeitingu“ sem gerir það að verkum að það er aldrei barist um landsvæði á þar til gerðum vígstöðum eins og í báðum styrjöldunum. Núna er barist um pólitísk völd á þar til gerðum vendilpunktum ýmissa ríkja (t.d. Baghdað og Ho Chi Minh). Nær væri að kalla þetta hnattrænt stríð. Og...

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
En jóa var refsað og siggi baðst ekki afsökunar á því

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það má með sönnu kalla þá kenningu að 11/09 "01 sé samsæriskenning. Það voru færðar sönnur fyrir því nokkrum mánuðum eftir árásirnar að al-Qaeda hafi ekki komið nálægt þessum árásum

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Einstein I do not know with what weapons World War III will be fought, but World War IV will be fought with sticks and stones.

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Loose Change nær samt að færa sönnur fyrir því að 11. september var ekki sökum al-Qaeda.

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Burt séð frá því hvort samsærissinnar hafa rétt fyrir sér eður ei, þá eiga kenningarnar svo sannarlega rétt á sér. Sú staðreynd að bandarísk stjórnvöld notuðu þennan hrikalega atburð til að réttlæta enn hrikalegri atburði er auðvitað vatn á millu samsærissinna. Svo má líka benda á að hingað til hafa komið ansi góð rök fyrir því að al-Qaeda hafi hvergi komið árásinni, gleymum ekki að það eru líka bara samsæriskenningar að al-Qaeda hafi borið ábyrgð á árásunum. Það hafa verið færðar sannanir...

Re: Kjarnorkuárás á New York seinni hluta ársins 2007!

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
2007 er mikill spurning fyrir hinn vestræna heim, þetta er síðasta árið sem BNA getur ráðist á Íran, því 2008 er kosningaár í BNA og hæpið að ráðist verði inn í Íran þá. BNA mönnum vantar bara afsökun og kjarnorkuárás er ansi góð ástæða. En menn hafa lært mikið síðan 11. september 2001. Til dæmis komust menn að því í sumar í Lundúnum að það þurfti ekki að framkvæma hryðjuverkaárásina sjálfa til að ná þeim afsökunum sem til þarf. Það er nóg að sviðsetja hryrjuverkahandtöku á síðustu stundi...

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég held að þú sért að misskilja trúarbrögð svolítið. Tilurð heimsins og aðrar veraldlegar pælingar af þessu tagi sem vísindin hafa að mestu svarað er bara einn pínulítill þáttur í trúabrögðum. Meira að segja hafa flestir trúaðir menn afneitað þeim hluta trúarinnar sem snýr að því. En trúin er bara svo miklu meira en bara það. Hún gefur t.d. von og frið fyrir þá sem trúa, eða eins og Jesús sagði, ljós lífsins. Vísindin geta það t.d. ekki. Á móti kemur að vísindin gefa manni staðreyndir sem...

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Tekin biblíusaga, t.d. og séð hvernig mismunandi fólk bregst við henni. Gamla testamentið er krökkt af svoleiðis. Og þetta er bara eitt dæmi, en annars er bara rugl að setja trú og vísindi í sama mengið. Því trú boðar eitthvað sem vísindin veita ekki og öfugt.

Re: Af hverju er launamunur á kynjunum ?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Fyrirgefðu en ég verð að segja að þetta er grútléleg grein. Með þessu titli hélt maður að þú værir að fara að svara spurningunni með staðreyndum og heimildum sem væru eitthvað nýjar. En þú kemur bara með þína eigin kenningar án þess að styðja þig við eitthvað annað en eigin hugmynd um áhrif einhverja ákveðna hormóna. Fyrst vill ég benda þér á að hormónar réttlæta ekki kynjamismunun. Karla skara kannski framúr með hjálp testósteróns, en jafnframt á testósterón mikinn þátt í því að fólk...

Re: Af hverju er launamunur á kynjunum ?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þetta svar er uppfullt af alhæfingum. Það er enginn að banna körlum að skara fram úr. Þeir eru víst, eins og greinahöfundur benti á, troðnir testósterón hormónum og því mun metnaðarfyllri til að skara framúr. Hins vegar var þessi grein og þitt svar að réttlæta kynjamismnunun á þeim forsendum að konur séu almennt öðruvísi en karlar. Það getur vel verið ástæðan en slík ástæða er ekki réttlætanleg fyrir slíkri mismunun

Re: Af hverju er launamunur á kynjunum ?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ef þú ferð á meimasíðu hagstofunnar og lýtur á launabreytingar milli kynja hjá þremur lægst launuðu stéttunum, þá sést bersýnilega að launamunur kynjanna er ekki bara staðreynd heldur hafa laun karla hækkað mun meira en laun kvenna. Þennan mun er ekki hægt að réttlæta með einhverri testósterónsafsökun því í langflestum tilvikum eru launamál og kjarasamningar forsniðnir fyrir alla vinnumenn og einstaka starfsmenn vinna eftir því.

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þú Já, en vísindi gera okkur kleyft að rannsaka manninn. Trúarbrögð gera það ekki. Þetta er alhæfing því það er bara víst hægt að rannsaka manninn í gegnum trúarbrögð, og það er ekki hollt skipta sér af annara manna skoðunum ef skoðanir manns sjálfs eru byggðar á alhæfingum.

Re: Amerísk Alræðishyggja

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Fyrst vað það kallað frjáls þjóð, það flaug út um gluggann um leið og fyrirtækin urðu valdameiri en ríkisstjórnirnar. Þá vorum við kölluð frjálsir einstaklingar, svona svo það hljómi betur. En ef þetta nær fram að ganga er það eina sem hægt er kalla frjálst er frjáls fyrirtæki. Því má svo bæta við að ég reyndi að fara inn á citywatcher.com en það er greinilegt að Bjössi Bjarna sé eitthvað að reyna að fela fyrir okkur, eða þá að martröðinni sem er lýst í korkinum fyrir neðan sé orðin að veruleika.

Re: Dauði netsins..

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég myndi ekki kenna kananum um þetta, frekar hnattrænum stórfyrirtækjum. Það eru gífurlegir fjármunir í húfi. Þú sérð bara allan þennan áróður um misnotkun á höfundarétti í gegnum internetið. Það hefur ekkert að gera með listina eða listamennina sem eiga þau listaverk sem er dreift um netið því internetið er það besta sem hefur komið fyrir hana frá upphafi siðmenningarinnar. Nei, þetta eru stóru útgáfufyrirtækin sem standa að þessum áróðri. Þau eru ekki að græða eins og þau vilja og fyrst...

Re: Tvíeggja sverð í baráttu við öfgamenn

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Netið má aldrei verða miðstýrt, það er alltof gott vopn með lýðræðinu til að eiðileggja með einhverskonar miðstýrðri löghyggju. Slíkt er gert til dæmis í Kína. Þar sem jafnvel bókmenntir listir eru ritskoðaðar. Megi vesturveldin aldrei leggjast svo lágt!

Re: Tyrkland

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ekki reyna að segja mér að lögin séu ekki sett til þess að banna búrka fyrst og fremst. Þetta er alveg eins og í Frakklandi þar sem öll áberandi trúartákn vöru bönnuð í skólum landsins. Vissirðu að 5% Evrópumanna segjast vera múslimar? Gadaffi sagði líka að Evrópa myndi fyrr eða síðar verða múslimsk álfa. Múslimar fjölga sér mun hraðar en kristnir og auðvitað hafa stjórnvöld áhyggjur af gangi mála. Þetta mun gjörbylta valdajafnvægi álfunar. Og eins og allir vita hefur Evrópa ekkert breyst...

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég skil þig. Tungumálið hefur samt mikið að segja um notkun ýmissa hugtaka þannig að nær væri að uppfæra skilgreininguna upp á íslensku. Nafnorðið trú er komið af sögninni að treysta. Þar með er trúleysi einfaldlega að treysta engu. Það er samt asnaleg skilgreining þar sem orðið er notað á mun víðtækari hátt og því réttara að segja að trúleysi sé að treysta engu algildu, t.d. því að Guð hafi skapa heiminn eða að einhverskonar máttur bindi alheiminn saman. Hins vegar er til annað hugtak á...

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Alhæfingar og aftur alhæfingar. Fyrst fólk er trúlaust þá ætti trú annara manna ekki að skipta það máli

Re: Tom Cruise "spámaður".

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Skv. þinni skilgreiningu á trúleysi þá getur Búddismi, Taóismi, Confúsionismi o.fl. skilgreinst sem trúleysi. Meira að segja vísindakirkjan er tæp undir þessa skilgreiningu. Ég er að benda þér á að trúarbrögð geta vel virkað sem slík þó það sé ekkert æðra veruform eða guð innan þess.

Re: Tyrkland

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ef að ég væri terroristi og ætlaði að sprengja sjálfan mig í Amsterdam, þá gæti ég þess vegna klætt mig upp sem Haldór laxnes eða Suu Kyi, þess vegna bara venjulegum gallabuxum og skyrtu með bombuna í skjalatösku. Ég hef aldrei heyrt dæmi um að terróristar dulbúa sig sem múslimakona í búrk. Og auk þess þá ertu hvort eð er að fara að sprengja þig, maður er ekkert hræddur við að löggan stoppi mann og biðji mann vinsamlegast að leyfa sér að sjá andlitið sitt ellegar sektar hún mann. Þetta er...

Re: Tyrkland

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það skiptir litlu máli bannklæðin heita búrkar eða grímur. Þetta eru samt sem áður lög sem banna sjálfsagðan hlut. Hryðjuverkaógn eru engin rök þar sem hryðjuverkamaður er jafn líklegur til að ganga í búrk og súpermannbúningi. Ég hef ekki almennilega kynnt mér hvað Baskar vilja í þeirra málefnum en sú staðreynd að aðskilnaðarsinnuðum Böskum er bannað að hafa stjórnmálaflokk setur mjög svartan blett á lýðræðið í ESB-löndunum. Það að allir meigi bjóða sig fram til þings er ein af forsendum...

Re: Stóriðja á Íslandi?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er líka spurningin um hvort það sé ein af ástæðum þess að stjórnvöld leggi svona gífurlega áherslu á þungaiðnaðinn. Flest störf í þjónustusamfélaginu, sem Ísland er á góðri leið með að verða, krefjast háskólamenntunar eða sambærilega menntun. Það eitt þýðir að eftir x mörg ár verður meirihluti landsmanna langskólagengin og það myndi raska því valdajafnvægi sem nú er við lið. Sumsé, fleiri menn eins og Jón Ásgeir og co.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok