Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Íslenski herinn

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hehe, íslenskur her. Svolítið steiktur húmor en alltaf jafn fyndinn. Því má svo við bæta að bjössi bjarna er á leiðinni úr ríkisstjórninni (vonandi) og með honum fara þessar meinillu hugmyndir.

Re: Evran.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það sést hversu vel neytendasamtökin standi sig á tímum lækkunar vasksins á matvælum

Re: Rekstrarumhverfi íslenskra banka...

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Mér finnst bara ekkert að auðkennislyklunum. Bankarnir eiga hrós skilið fyrir þetta framtak, núna getur maður notað heimabankann í almenningstölvum án þess að óttast um að einhver brjótist inn í hann. En að megininnihaldi greinarinnar þá finnst mér bankarnir nýta sér íslenskt umhverfi til svíðingsháttar. Það er nokkuð augljóst að fólk sem býr úti á landi verður að eiga bíl. Til þess að eignast bíl verður að taka lán. Og þökk sé okkar ástkæra seðlabanka og tækifærissinnum í hinum bönkunum er...

Re: Framtíðarlandið í framboð

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Besta leiðin til að stjórna atvinnulífinu er að leyfa því að fljóta að sjálfu sér. Meirihluti landsmanna vinnur í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum. Það hefur sýnt sig að það að þröngva risa álverum á staði þar sem smáfyrirtæki blómstra hefur ekkert nema þensluaukandi áhrif. Bara núna í fréttunum í gær var talað um að útgerðirnar á Austurlandi yrðu að hagræða til að lifa af komu álversins. Slík hagræðing gæti haft keðjuverkandi áhrif sem myndi leiða til fækkunar starfsfólks. Og ofan á það...

Re: Framtíðarlandið í framboð

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Reyndar voru 39% óákveðnir (spurning hvort það tengist eitthvað tilvonandi framboði aldraðra og öryrkja og Framtíðarlandsins) sem gerir niðurstöðurnar ansi skakkar. En ég tel að Framtíðarlandið ætti að nýta sér þessa óákveðnu til að minnka fylgi XD. Ég tel það nefnilega mjög líklegt að það séu til margir andstæðingar sovéskra atvinnustýringar sem eru ekki alveg jafn öfga-vinstri eins og vinstri-grænir og hafa áttað sig á hve Samfylkingin er óstabíll flokkur. Það er akkúrat þessi hópur sem...

Re: Tyrkland og Evrópusambandið

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Flott og skilmerkileg grein. Ég ætlaði að bæta einhverju við um Atatürk en nennti því ekki svo þessi linkur verður að nægja http://en.wikipedia.org/wiki/Atat%C3%BCrk%27s_reforms

Re: Tyrkland og Evrópusambandið

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er ekkert að setja út á svarið, sem annars var mjög flott. En múslimar trúa ekki á annan Guð en kristnir heldur eru megináherslur trúar þeirra einfaldlega eftir öðrum spámanni en okkar.

Re: Enn ein hryðjuverkin

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Já, það er nokkuð auðvelt að kenna Írönum um þetta, þó það sé hæpið því, ef ég man rétt, voru ba'ath-istar ekkert sérlega miklir persavinir. Mig minnir að Saddam hafi talað um nauðsýn þess að berjast við persa.

Re: Þing án flokka

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég held að það sé hræðileg hugmynd. Ég veit ekki alveg hvernig þetta er en ég held að fólk megi fara í sérframboð sem einstaklingur nú þegar. En að banna fólki að mynda saman flokk myndi bara leiða til þess að hugsjónamenn ættu minna erindi á þingið og þingið myndi fyllast af útsendurum fyrirtækja. Frekar ætti að drepa niður hreppapólitíkina og færa hana yfir á hreppina sjálfa, Koma í kring einhverskonar svæðisstjórnum þess vegna, og gera landið að einu kjördæmi. Og til að dempa niður þann...

Re: Teheran

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er svo mikið hagsmunamál fyrir BNA að halda þessum samsæriskenningum lifandi. Ef þeir ætla að fá að ráðast þangað inn verða þeir að hafa góða afsökun, sérstaklega á meðan Demókratar eru við völd. En annars geta Íranir líka sjálfum sér um kennt, þeir með sína alræðishyggju og eiginháttarsemi. Þeir hefðu aðeins getað hugsað út fyrir ramman og fjárfest frekar í sólarorkuverum eða a.m.k. reynt að ná sáttum í málinu með Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni.

Re: Bush og Bandaríkin

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Sjáðu til. Eftir neðanjarðalestastöðvaárásirnar í Madríd, þá kenndi þáverandi forsætisráðherrann þar í landi Böskum um. Það voru engar sannanir fyrir því og í rauninni hafði engin hugmynd um hver framdi þessi hryðjuverk. En málið var að það var mikill hiti í Spánverjum varðandi Baska þegar þetta var, fólk að gagnrýna stefnu ríkisstjórnarinnar og svona. Og svo komu hryðjuverkin eins og himnasending. Forsætisráðherran var ekki lengi að réttlæta stefnuna sína fyrst Baskar höfðu gerst sekir um...

Re: Það sem fáir virðast vita

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þannig að hann var álíka mikill spámaður og Bob Dylan og Utangarðsmenn

Re: Það sem fáir virðast vita

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Réttlætanleg valdbeiting kalla þeir þetta. Ég held ég fari með rétt mál þegar ég segi að raunverulegar stríðsyfirlýsingar séu teljanlegar með fingrum annara handar eftir seinna stríð. Samt hefur aðeins ríkt samfelldur friður í 26 daga. http://en.wikipedia.org/wiki/Peace#Historical_examples_and_counter_examples

Re: Evran.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er markaðslögmál nýfrjálshyggjunnar. Allt er á kostnað almennings

Re: Bush og Bandaríkin

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ef ég man rétt þá hertu þeir rosalega ítök sín á heimastjórnarsvæðunum strax eftir árásirnar sem náttúrulega var falið í skugganum á hryðjuverkunum, þeir hafa fengið að gera ótrúlegustu hluti í nafni hryðjuverkastríðsins þökk sé árásunum (nú síðast ráðist inn í Líbanon) og óvinir þeirra í Írak og Íran meiga sín lítils eftir að bandaríkjamenn hafa komið upp leppstjórn í báðum þessum löndum, þökk sé árásunum. Þar fyrir utan hefur viðvarandi stríðsástand í Írak, Líbanon og víðar heftað...

Re: Evran.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Evran er klassískt dæmi um patent- eða gervilausn. Hún er til þess að gefa okkur falskar vísbendingar um ástæður þessa óstöðugleika í hagkerfinu okkar. Það sem við ættum að gera væri að brenna seðlabankann (samt ekki bókstaflega). Miðstýring er sjaldan af hinu góða og peningamálin er engin undantekning. Hækkun stýrivaxta hefur orðið til þess að vaxtarmunur bankana er stjarnfræðilegur (18% minnir mig) og svo hefur miðstýring í atvinnulífinu (stóriðjustefnan) einnig verið mjög þennsluaukandi....

Re: Evran.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Steve Forbes er klassískt dæmi um bandarískan svíðing sem sér möguleika í íslensku viðskiptalífi og vill að hnattræn (bandarísk) stórfyrirtæki, eins og Forbes-veldið, njóti ágóðans. Með núverandi miðstýringa seðlabankans erum við bókstaflega að gefa íslensku bönkunum marga milljarða á ári. Forbes og hans líkan vilja færa ágóðan frá íslensku bönkunum til Bandaríkjanna með því að færa miðstýringuna frá seðlabankanum til Washington eða Brussel (sem er jú einnig peð þessara hnattrænu...

Re: Evran.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Haha, Jenið, þessi var góðu

Re: Bush og Bandaríkin

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Guð hvað ég ætla að vona að Hillary verði ekki framboðsefni Demókrata, stefna hennar gegn tölvuleikjum og gervi-ofbeldi sýnir hversu fávís hún er í hlutum sem þarfnast gagnrýnina hugsana. Frekar vonast ég til að Barack Hussein Obama eða Guliani verði næsti forseti þessa vesturveldis. Annars þá er lítið sem getur bjargað BNA frá þeirri glötun sem blasir við þeim. Þeir munu ráðast á Íran sama hver verður við völd. Raunveruleigir stjórnendur Bandaríkjanna (þ.e. hnattrænu stórfyrirtækin) munu...

Re: Enn ein hryðjuverkin

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Svo er það spurningin hvort Eftirlitið hjá bandarísku innrásarsveitunum sé svona hræðilega lélegt eða að þarna sé eitthvað plott eða leki í gangi innan sveitana.

Re: Hugsjónarmaður?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vísindavefur Háskóla Íslands Hann var sagður svo heltekinn af hugsjóninni að hann hugsaði ekki um annað en byltingu hvor sem væri í svefni eða vöku.

Re: Skrítið nafn á stefnu, feministar og einstæðir feður.

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Er það nú ekki augljóst. Það eru öfgamenn sem skemma ímynd þessarar annars ágætu stefnu, svona svipað og Gunnar í Krossinum er að skemma ímynd kristninnar með öfgaháttunum sínum.

Re: Mengunarslysið í Bhopal

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Neinei, ég get alveg „spottað húmor“, það er bara sumt sem er fyndið og annað sem er glatað. Auk þess eru oft fyrstu viðbrögð við einhverju svona sorglegu eins og þessu slysi samúð, húmor á þeirri stundu á það til að snúast í andhverfu sína.

Re: Æsingsóráðsheilkenni

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það tók nú ekki langan tíma að finna þetta. Æsingsóráðsheilkenni er skilgreint sem sjúkdómur/sjúkdómsástand. Það felur í sér fjóra aðalþætti sem koma fram í ákveðinni röð. Hiti, óráð með uppnámi eða æsingi, öndunar- og hjartastopp og dauði. Í flestum, en ekki öllum tilvikum, endar óráðið með átökum við lögreglu eða heilbrigðisstarfsmenn og með því að líkamlegar hömlur eru lagðar á viðkomandi (hreyfingar heftar). Dæmigert er að fáeinum mínútum eftir að viðkomandi hættir að berjast um fer...

Re: Mengunarslysið í Bhopal

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvað er málið?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok