Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Ísrael-Líbanon

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það breytir litlu ef myndirnar eru sviðsettar, þær eru samt mjög sterkur áróður gegn stríði. Sjáðu til dæmis hvað stelpurnar eru líkar. Nema á efri er hún í björtum klæðum og brosir, en á neðri er stúlkan mjög líklega látin og í gráleitum klæðum. Aðstæðurnar eru mismunandi eftir því hvoru megin landamærana þær eru

Re: Stríð

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg sammála þér, fólk verður að fara að líta á kjarnorku með opnara hugarfari. En áður en kjarnasamrunaver eru orðin að veruleika held ég að það sé betra fyrir heimin að takmarka kjarnorku eins og mögulegt er. En heimurinn er bara svo brenglaður.

Re: Gróðurhúsaáhrif

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Takk fyrir svarið, en hvar eru heimildir fyrir síðustu fullyrðinguna?

Re: Gróðurhúsaáhrif

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ef þú fléttir upp hanttrænni hlýnun (e. global warming) á Wikipediu, þá ættirðu að sjá línurit sem sýnir hitastig jarðarinnar síðstu árþúsundin. Á þessu línuriti sést að hitastig jarðarinnar hefur sveiflast mjög í gegnum tíðina af náttúrulegum orsökum. En það sem vekur hins vegar athygli við þetta línurit er að um leið og iðnbyltingin byrjar fer línan svo gott sem lóðrétt upp á við. Það eitt er þónokkuð góð sönnun á tilveru þessara hnattrænu hlýnunar. Það sem hins vegar hefur aftrað áhrifum...

Re: Skólaleikrit

í Leikhús fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég segi það, ef Jerry Brocheimer og Steven Segal myndu búa til eitt stykki söngleik, þá yrði útkoman verslóleikrit

Re: Haddi

í Leikhús fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Töffari, skoppari, dópisti og 17 ára. Alveg eins og sniðið fyrir Gunna (shadowmaker) Bætt við 14. janúar 2007 - 16:15 Já Gunni, ef þú lest þetta, þá kallaði ég þig dópista :)

Re: Hvað er eiginlega að?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Gróðurhúsaáhrifin er ekki eitthvað sem er tekið burt sí svona. Fyrst vill ég þá taka það fram að án gróðurhúsaáhrifana væri mjög hæpið að jafn fjölbreytt dýralíf myndi fyrirfinnast á jörðinin en raun ber vitni. Hins vegar geta gróðurhúsaáhrifin líka haft þveröfug áhrif. Það gerist ef of lítil orka frá sólinni skilar sér ekki aftur frá jörðinni og hitin verður svo gífurlega mikill að jörðin yrði svo til ólíf fyrir manninn. Venus er t.d. gott dæmi um of mikil gróðurhúsaáhrif. Vissulega er bætt...

Re: Langisjór

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Mér er sama, og þar með eru rökin þín fallin Bætt við 10. janúar 2007 - 22:38 *Ekki

Re: Langisjór

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Það ber ekki að vanmeta vald peningaaflana. Ég sé alveg jafn mikin áróður hjá þeim og Savingiceland stundar. Ég veit Savingiceland er mjög hlutdræg síða en hún engu hlutdrægari en Geir H. Haarde eða Valgerður Sverrisdóttir. Munurinn er fyrst og fremst sá að álverssinnar stunda það að væla og láta vorkenna sér yfir því hvað „hipparnir“ eru ósangjarnir. Savingiceland er snilldar útspil, það verður að viðurkennast (hvort sem þú er álverssinni eða „afturhaldskommatittur“) því þessi síða kemur...

Re: Langisjór

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hingað til hefur því aldrei verið neytað af yfirvaldinu (eða ekki hvað mig minnir), svo ég held að hættan sé til staðar.

Re: Heiglar sem fara um í hópum og berja.

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Sammála, maður getur ekki annað en vorkennt þessu fólki. Greyin eru svo heimsk að þau vita ekki betur. Vonandi verða þessar blækur skammaðar ill verulega

Re: Lýðveldissinnar

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
takk sömuleiðis og gangi ykkur vel

Re: Lýðveldissinnar

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég held að ef þið viljið gera þetta af fullri alvöru, þá þyrftuð þið að gera rótækar breytingar á þessu öllu saman. Í fyrsta lagi hentar nafnið enganvegin innihaldslýsingunni. Lýðveldissinnar eru þektir fyrir rótækar stjórnarandstöðustefnur, m.a. aðal stjórnarandstöðuafl frakka á byltingarárunum og rótækir aðaskilnaðarsinnar í N-Írlandi kalla/kölluðu sig lýðveldissinna. Lýðræðissinnar hentar betur þessari lýsingu hér fyrir ofan. Og varðandi hana þá er hún ekki upp á marga fiska og mun aldrei...

Re: Hvað er eiginlega að?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Svo segja þei

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég veit það ekki, ég veit allavega að núverandi kvótakerfi hefur til dæmis floppað í Færeyjum svo og hefur sú auðlindastefna sem nú er við líð klofið þjóðina. Þannig að ég myndi segja að núverandi kerfi sé ekki mjög sniðugt. Ég tel ofangreint kerfi sniðugara að því leiti að einkaaðillar hugsa fyrst og fremst um hvernig þeir sjálfir geta grætt sem mest (sama hvort það feli í sér að selja allan kvótan úr bænum og loka útgerðinni) en opinberir aðillar þurfa haga málunum þannig að almenningur...

Re: Hvað er eiginlega að?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ja, nú þegar fara flóð í Bangladesh versnandi með hverju ári, hundruðir farast, hitabeltissjúkdómar eins og malaraía eru að færast norðar, eiðumerkur stækka, uppskerur eru að bresta, hundruðir svelta, að ógleimdum þeim hitabeltisstormum sem eru skaðvænlegri með hverju árinu sem líður og já, það má auðvita ekki gleyma því eina sem íslendingar hugsa um, siglingaleiðir um norðurskaupið opnast.

Re: Stríð

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Íranar eru hræddir við Ísraela og öfugt. Eini friðurinn sem getur ríkt á milli þessara landa er ógnarfriður (a.m.k. á meðan annað þeirra ræður yfir öflugum her og vopnum). Aðgerðir Ísraela gegn Írönnum munu ekki koma í veg fyrir aðgerðir Írana með kjarnorkusprengjum, þvert á móti munu þær auka á líkurnar. Persæonulega hallast ég að þessar samsæriskenningar um að Íranar séu að reyna að koma sér upp atómbombum séu sannar og ég vill klerkastjórnina þarna burt, helst í gær. En munum að öxulveldi...

Re: Hvað er eiginlega að?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
http://en.wikipedia.org/wiki/Image:2000_Year_Temperature_Comparison.png http://en.wikipedia.org/wiki/Image:Holocene_Temperature_Variations.png Það er ekkert náttúrulegt við þessar breytingar, ekki nema það sé hrein og bein tilviljun að línan byrjar að fara nánast lóðrétt upp á við við iðnbyltinguna. Þeim hagsmunaaðillum sem afneyta þátt mannsins í gróðurhúsaáhrifunum hefur verið líkt við þá hagsmunaaðila sem afneituðu skaðsemi vindlinga í gamladaga.

Re: Stríð

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Stríðsyfirlýsing er dáið fyrirbæri, stríð í dag eru háð með fyrirbæri sem kallast réttlætanleg valdbeiting. En mér finnst þessi alþjóðaumræða um kjarnorkumál Írans einkennst af heimsku. Ef það er að fara að koma orkukreppa í Íran þá ættu þeir að finna einhvern alþjóðlegan aðilla til að setja upp og reka kjarnorkuver, svona til að tryggja öðrum ríkjum að þetta sé ekki til að koma upp vopnum. Og ef önnur ríki eru svo á móti kjarnorkustefnunni þeirra, þá ættu þau að aðstoða Írana við að koma...

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
En ég var ekki að tala um að kvótin myndi verða í eigu þeirra. Ég Auðlindir ættu að vera sameign þjóðarinnarNúvernandi auðlindaskipting fiskimiðana er þannig háttað að fiskveiðikvótin er í eigu einkaaðilla sem selja eða leigja hann út gegn stöðluðu gjaldi. Hins vegar var ég að tala um að kvótinn ætti að vera í eigu opinbera aðilla (ríkisins, sveitafélaga) sem útdeila kvóta eða lána hann til hagsmunaaðila (hvort sem það sé fyrirtæki eða einyrki) algjörlega gjaldfrítt.

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Afríku, suður-Asíu, mið- og suður-Ameríku, jafnvel Ísrael (Það ríki sem sennilega mest þarf hjálp í dag) og bara alls staðar þar sem hjálp er þurfi. En ég lít á heimin þannig að allar manneskjur séu jafnar og okkur sem eigum meira ber skylda að jafna möguleika þeirra sem minna meiga sín. Það þarf ekki endilega að kosta mikla peninga, peningaaðstoðir eru öflugustu þróunaraðstoðirnar. Opin markaður t.d. er sagður efla mjög stoðir atvinnulífsins í þróunarlöndum (sem reyndar hefur sínar...

Re: Angela Merkel og George W. Bush

í Deiglan fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Var myndin tekin fyrir eða eftir að fangaflutingarnir komust upp?

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
takk takk, beint lýðræði getur vel virkað þó það sé háð fulltrúadeild. Það er svoleiðis í Sviss, svo lýsti ég því líka í svipuðum dúr og því sem er í Sviss. Hvað varðar hægri-vinstri pólitík, þá var ég svona meira að meina að hvorug hugmyndafræðin virki án stuðnings frá hinni, að mínu mati auðvitað. Blandað hagkerfi skilurru? Þó ekki eins og staðið er að því í dag. En anarkismi, m.a., er ekki háður vinstri-hægri pólitík

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Láttu ekki svona… Þetta er pís of keik. með smá samstarfi við aðrar þjóðir er það ekkert mál. Fer ég ekki með rétt mál þegar ég segi að norrænt samstarf hafi styrkt mjög stoðir atvinnulífs í eistrasaltslöndunum?

Re: Mín stjórnmálaskoðun

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Reyndar sagði ég hagsmunaaðilla, en það sem ég vildi hafa sagt var að skipta auðlindanýtingunni milli hagsmunaaðilla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok