Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: MSN Messenger 6 .0

í Windows fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þakka þér fyrir, ég er ekkert ótrúlega vitlaus og heldur ekki ógeðslega löt, það vill bara svo til að ég skil ekkert í tölvum og vildi bara fá smá útskýringu á því sem hægt er að gera með plúsið en ekki venjulega msnið. Nei, ég skildi ekkert hvað þú varst að skrifa.

Re: MSN Messenger 6 .0

í Windows fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hmm ég er kannski ótrúlega vitlaus, en hver er eiginlega munurinn á msn plús og venjulegu msni? Ég er með plúsinn og ég finn bara engann mun á þessu.

Re: The Matrix Reloaded: Mín upplifun

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En af hverju heitir Mervíkingurinn, Mervíkingurinn(eða eitthvað, las bara textann)

Re: The Matrix Reloaded - Greining að hluta...

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mjög flott grein, skil myndina miklu betur núna. En ég skil samt ekki hversvegna vélarnar héldu áfram að grafa. Voru þær þá komnar framhjá Síon? Eða voru þær á leiðinni þangað?

Re: Smá pæling.

í Harry Potter fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En er ekki talað um að Lucius Malfoy hafi verið í skólanum á sama tíma og Tom Riddle? Og Hagrid nottla líka. Hvað eru þeir þá gamlir? Malfoy virðist ekkert rosa gamall, en samkvæmt þessu ætti hann að vera kominn yfir sextugt.

Re: ó-ó-ó-ótrúlegur þessi maður!

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Oh ég HATA þennan mann, hann er bara gjörsamlega óþolandi! Af hverju þarf hann alltaf að vinna allt? Það var bara engin spenna í keppninni í fyrra, það var bara ömurleg keppni, hann vann alltaf allt! Svo núna þegar maður hélt að það mundi eitthvað spennandi gerast, þá fer hann að vinna allt aftur. ÓÞOLANDI

Re: ó-ó-ó-ótrúlegur þessi maður!

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Oh ég HATA þennan mann, hann er bara gjörsamlega óþolandi! Af hverju þarf hann alltaf að vinna allt? Það var bara engin spenna í keppninni í fyrra, það var bara ömurleg keppni, hann vann alltaf allt! Svo núna þegar maður hélt að það mundi eitthvað spennandi gerast, þá fer hann að vinna allt aftur. ÓÞOLANDI

Re: Sólarhringurinn sem ekkert var sagt frá

í Harry Potter fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað meinarðu með “auðvitað ekki ég er 18”? Ertu að segja að það sé sjálfsagt að þar sem þú ert 18 hafir þú ekki áhuga á Harry Potter? Ég segi nú bara fyrir mig að ég er að verða 17 og ég ELSKA Bangsímon, Múmínálfana og Harry Potter. Mér finnst barnabækur í rauninni miklu skemmtilegri en unglinga og fullorðinsbækur. Þannig að mér finnst doldið skrýtið af þér að segja að aðalástæðan fyrir því að þú hafir ekki áhuga á Harry Potter sé sú að þú sért orðin of gömul fyrir “barnabækur”. Í rauninni...

Re: Dýr eru ekki dót!!! Grey kötturinn!!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En þú verður að athuga að kettir eru rándýr og það er í eðli þeirra að veiða sér til matar. Það er ekkert mjög langt síðan manneksjur voru þannig, við erum meiraðsegja þannig ennþá. Og hvað húsgögnin varðar þá hef ég aldrei lent í því að kötturinn minn eyðileggi húsgögnin mín. Kettir þurfa að brýna klærnar á sér, ef þú vilt ekki að ketir komi inn til þín og rústi húsgögnunum þínum, lokaðu þá gluggum sem eru neðarlega. Mér finnst ekkert af því sem þú sagðir vera næg rök fyrir því að það megi...

Re: Er kötturinn minn geðveikur eða er þetta normalt?

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kötturinn minn er nákvæmlega sona, hann er svo frekur og leiðinlegur og bítur og klórar. Hann er samt bara venjulegur heimilisköttur og hann var ekki of lengi hjá mömmu sinni og hann fær að fara út. Hann er bara svona leiðinlegur. Ég veit ekki af hverju.

Re: Wolfang Amadeus Mozart

í Klassík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst Mozart og Beethoven báðir góðir en mér finnst samt Vivaldi bestur. Fín grein.

Re: Fiskarnir mínir... Yndislegir!

í Fiskar fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Fólk getur verið soldið blint á gæludýrin sín. Ég á t.d. brjálaðan kött og þá meina ég BRJÁLAÐAN. Hann heitir Askur og maður má aldrei klappa honum og hann bítur og klórar og ég er öll útklóruð og bitin eftir hann. En mér finnst hann samt yndislegasta dýr í heimi, ég bara elska hann útaf lífinu og mundi aldrei skipta á honum og neinu öðru dýri:).

Re: Fólk kann ekki að skammast sín

í Gæludýr fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Prófaðu að skvetta á þá vatni. Þá forðast þeir þig eins og heitan eldinn. Vertu bara ekkert sparsamur á vatnið.

Re: Qwerty - lyklaborð hönnuð til hægja á rirhraða!

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 23 árum
ekki langan tíma? ekki langan tíma?????? það tók mig sko alveg HRYLLILEGA langan tíma að læra á þessa helv… fingrasetningu, ég vældi mig útúr vélritunartímum í 9. bekk og fékk f…. heimavinnu til að gera í jólafríinu. Það kalla ég sko mikið á sig lagt að læra þetta og væri ekki til í það aftur. Jú, kannski, ef ég gæti skrifað enn hraðar en núna. Flott grein hjá þér, mér hafði aldrei dottið þetta í hug…

Re: Gráti næst !!

í The Sims fyrir 23 árum
Já, þetta er hrikalegt þegar maður lendir í þessu. Ég lenti líka einusinni í einu sem var doldið fyndið. Ég var búin að gera magnað hús og það var svona ástfangið par sem bjó í því. Svo sátu þau í einhverjum sófa, og allt í einu kviknaði í. Þá gátu þau bara ekkert staðið upp og ég þurfti að horfa upp á þau brenna inni og allt húsið brann bara. Þar sem ég var hálfviti var ég ekki búin að seifa leikinn svo fólkið dó bara og húsið eyðilagðist. Ég hló samt eins og fáviti þegar þau brunnu…

Re: Hringavitleysa

í Tolkien fyrir 23 árum
Rosa flott grein hjá þér, alveg æðisleg í Skinfaxa. Myndirnar sem voru með henni eru alveg snilld!

Re: The Weasleys

í Harry Potter fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hreysið á íslensku, ástkæra ylhýra málinu.

Re: Eru/Ilúvatar

í Tolkien fyrir 23 árum, 2 mánuðum
hei, var það ekki Cató eldri sem sagði þetta eftir annað púnverksa stríðið… eða : ég legg til að karþagó verði lögð í eyði, einhverntíman um 200 f.kr. :)

Re: Ég vil ekki....

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Æðislegt ljóð, eitthvað svo mikil svörun. En Gulla, ganga eftir göngum?????? Takk fyrir skilaboðin:)

Re: Snjór

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
ok flott ljóð en þögul sem hvönnin???? hvernig datt þér það í hug???? Æ þarf ég að spyrja!

Re: Snjór

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
ok flott ljóð en þögul sem hvönnin???? hvernig datt þér það í hug???? Æ þarf ég að spyrja!

Re: Tvífari Viktors Krum?

í Harry Potter fyrir 23 árum, 3 mánuðum
honum er náttúrulega lýst í bókinni og svo er þetta bara svona tilfinning sem maður fær.

Re: vitrun

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
eins og venjulega hefur þér tekist að skapa hið stórfengleasta ljóð sem ég hef lesið í margar vikur. Æðislegt Gulla

Re: villingar

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
elsku gulla mín þetta er alveg æðislegt ljóð í alvöru!! Eitthvað svo djúphugsað. Æðislegt!!!

Re: It´s love

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Stórkostlegt ljóð! 'Eg á varla orð í fórum mínum til að lýsa þessu ljóði. Skil ekki hvernig er hægt að semja svona vel!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok