Ég er alveg sammála öllu sem segir í greininni en ég tók samt eftir einu. Í fyrri myndinni segir í byrjun að stríðið við Sauron hafi átt sér stað í hlíðum Dómsdyngju. Í seinni myndinni segir svo Gollrir að þeir sem hafi dáið í því stríði séu í Dauðingjafenum! Hvernig komust þeir frá Dómsdyngju til Dauðingjafenja??? Svo finnst mér líka skrýtið að hobbitarnir skuli ekki vera feitari. En það skiptir kannski ekki máli.