Ég myndi segja að Radiohead séu meðal fremstu hljómsveita í heiminum í dag. Þeir hafa aldrei valdið vonbrigðum og allar plöturnar eru mjög góðar, þó svo að Pablo Honey sé á vissan hátt dálítið barnaleg ef svo mætti segja. Síðustu tvær plötur voru að vissu leiti stökk í aðra átt, en þó finnst mér einkenni Radiohead vera sterkt til staðar. Ef maður ber saman Pablo Honey og Kid A þá er alveg ótrúlegt að þetta sé sama hljómsveitin, en OK Computer var strax komin nær því sem þeir eru að gera...