Ég sá áðan brot úr myndinni When Harry met Sally og í þessu litla broti sem ég sá þá var Billy Crystal að segja að stelpur og strákar “gætu ekki” verið vinir… OK ég veit að þetta er bara mynd en ég fór svoldið að pæla í þessu, ríkir ekki alltaf einhver kynferðisleg spenna á milli stráks og stelpu sem eru góðir vinir? Þó svo að stelpan sé alveg áhugalaus um annað en bara vináttu þá vill strákurinn nánast alltaf negla stelpuna að ég held…
Þetta hefur gerst einu sinni fyrir mig, ég byrjaði með þessari stelpu sem ég var hrifinn af, en ég var mjög oft að tala við aðra stelpu sem var orðinn besti vinur minn, eftir nokkurn tíma þá var ég byrjaður að hugsa meira um þessa stelpu en kærustuna mína… Það endaði með því að ég hætti með kærustunni og byrjaði með þessari stelpu…
Ég var að pæla í þessu því ég held að þetta sama gæti nebblega gerst fyrir kærustuna mína, hún er búinn að vera að tala frekar mikið við einn gaur og ég er næstum 100% viss um að hann sé hrifinn af henni :(
What should I do?

<br><br>——-
Be yourself,let YOU come through…