Ég hef aldrei skilið afhverju menn eru svona mikið á móti BMW. Nú á ég einn slíkan, ekki til þess að ganga í augun á “þér”, þ.e. strákunum eða “ojj ljóskunni”, heldur einfaldlega af því að mér þykir gott að keyra hann, ég hef ekki þurft að hugsa um viðhald síðan ég keypti hann (já ég keypti hann) og ekki spillir fyrir að þetta eru fallegir bílar. Ef þið eruð að spá í hvernig ég hafi tímt að kaupa svona bíl, þá er þetta 13 ára gamall e36 (á götuna nóv. 91), sem fólk gæti auðveldlega haldið að...