Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Opinn félagsfundur hjá Geysir (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Fimmtudaginn 2.des 2010 kl 20:30 verður opinn félagsfundur hjá hestamannafélaginu Geysir. Fundurinn verður haldinn í andyri Rangárhallarinnar á Gaddstaðaflötum. Aðalfundarefnið er framtíð Gaddstaðaflata og allt sem við kemur því svæði. Nú eru félagsmenn hvattir til að mæta og tjá sig um þessi mál, einnig koma með frábærar hugmyndir sem hægt er að framkvæma á svæðinu. Einnig tjá okkur hvernig þeir vilja sjá Gaddstaðaflatir í framtíðinni. Vonadi sjáum við sem flesta. Stjórnin

Fréttatilkynning frá Hrossaræktarfélag Biskupstungna (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Þann 25. nóvember hélt Hrossaræktarfélag Biskupstungna sína árlegu uppskeruhátíð og sviðaveislu. Verðlaunaðir voru þeir félagsmenn sem sköruðu fram úr á árinu og veitt var í fyrsta sinn verðlaun fyrir ræktunarbú ársins, sem reiknað er eftir ákveðinni reikniverki þar sem aðaleinkunn allra sýndra hrossa er leiðrétt eftir aldri. Listakonan Sigurlína Kristinsdóttir hannaði veglegan farandgrip sem Landsbankinn í Reykholti gaf. Eftir verlaunaafhendinguna bauð félagið upp á sviðaveislu og síðan tók...

Notuð járningaáhöld og reiðtygi í tollinum (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Hestafréttir skora á alla hestamenn að fara inná þennan link hér fyrir neðan og finna ú hver maðurinn er sem á þenna varning. Þar er að finna skó, Adidas derhúfu, beisli með gulu og orans límbandi og fl. Svona á að uppljóstra og það strax. Sendið á netfangið hestafrettir@hestafrettir.is ef þið vitið hver maðurinn er! ekki verður gefið upp hver benti á viðkomandi. http://tollur.is/photogallery.asp?cat_id=2667&page_id=1&photo_id=9590

Enn eitt DNA málið komið upp (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Ekki er öruggt að Kjarval frá Sauðárkróki sé undan Hervari frá Sauðárkróki. Sýni var tekið var úr Kjarvali árið 2007 og er skráð „í skoðun“ Samkvæmt vinnureglum sem settar hafa verið verða ættartengsl í WorldFeng sem ekki standast DNA skoðun strokuð út. Bæði Dagur og Kjarval munu því missa feður sína á næstunni. Alla vega meinta feður í WorldFeng. Fróðlegt verður að fylgjast með þessu máli! http://hestafrettir.is/Frettir/9526/

Mótorhjól og hestar eiga enga samleið (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Hestar hafa næma heyrn. Þeir eru viðkvæmir fyrir hátíðnihljóðum en heyra lágtíðnihljóð verr en mannfólkið. Hestar hræðast bæði hljóð og hreyfingu mótorhjóla og þar sem þeir eru flóttadýr bregðast þeir við ógn með því að hlaupa eins og þeir eigi lífið að leysa. Við slíkar aðstæður skapast mikil hætta á slysum hjá hestamönnum og mikilvægt að mótorhjólamenn taki tillit til þessa. Mótorhjólamenn - Ekki aka á reiðvegum - Stöðvið hjólin og drepið á þeim, ef hestar eru í nánd - Setjið hjólin ekki í...

Aðalfundur FT 3.des (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Aðalfundur Félags tamningamanna fer fram föstudaginn 3. desember nk. á Kænunni í Hafnarfirði og hefst kl. 18. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson verða með kynningu á nýju BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. FT félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í fundarstörfum. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: • Fundarsetning og skipun starfsmanna fundarins • Ávörp gesta • Skýrsla stjórnar • Reikningar • Umræður um skýrslu og reikninga •...

Efri-Rauðalækur ræktunarbú ársins (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Ræktunarbú Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga árið 2010 er Efri-Rauðalækur. Á Efri-Rauðalæk stunda hrossarækt þau Guðlaugur Arason, Snjólaug Baldvinsdóttir, Baldvin Ari Guðlaugsson og Ingveldur Guðmundsdóttir. Á þessu ári voru sýnd 7 hross frá búinu í kynbótadómi. Meðaleinkunn sýndra hross var 8,14 og var meðalaldur þeirra 5,6 ár. 3 af þeim hlutu 8,0 eða hærra í aðaleinkunn. Langefstur í þeim hópi er stóðhesturinn Hraunar frá Efri-Rauðalæk sem hlaut hvorki meira né minna en 8,72 í...

Meistaradeild í hestaíþtóttum (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Fundur verður haldinn mánudaginn 29 nóvember kl: 17:00 í Ölfushöllinni Ingólfshvoli 2. Með eigendum og liðsstjórum Meistaradeildar Kveðja Stjórnin

Nýtt logo hjá Olil Amble og Bergi Jónssyni ræktendum ársins (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Gangmyllan, fyrirtæki þeirra Olil Amble og Bergs Jónssonar í Syðri – Gegnishólum hefur látið hanna nýtt merki fyrir fyrirtækið. Merkið er hestsauga þar sem hesturinn horfir fram veginn. Hugmyndin á bak við merkið er að fanga þá hugsun að markmið Gangmyllunar er að vera eitt af leiðandi fyrirtæki í hrossarækt og hestamennsku Íslenska hestsins. Gangmyllan vill horfa til framtíðar í sinni ræktun sem og þeirri þjónustu sem þau bjóða unnendum Íslenska hestsins. Það að merkið skuli vera hringlaga...

Hugur frá Ketilsstöðum (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Hugur frá Ketilsstöðum er 5 vetra sótrauðblesóttur,sokkóttur og glaseygður. Hann er sonur Ör frá Ketilsstöðum, en hún slasaðist illa á fæti sem tryppi og var ekki hægt að temja hana sökum þess. Ör er undan Kjarval frá Sauðárkróki sem er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Framkvæmd frá Ketilsstöðum, en sammæðra henni eru Djörfung, Minning og Flugnir. Djörfung frá Ketilsstöðum var fjögurra vetra á síðasta landsmóti og var með 8,23 í aðaleinkunn. 8,68 fyrir hæfileika, m.a 9,5 fyrir skeið og...

Yfirlýsing frá Valdimari Bergstað (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Vegna frétta sem birst hafa um innflutning á reiðtygjum og fatnaði við tollskoðun á bíl vil ég koma því á framfæri að mér þykir mjög leitt að hafa orðið á þessi mistök. Að baki bjó ekki sá ásetningur að smygla neinu inn í landið heldur var þetta gert í hugsunarleysi. Um er að ræða mín eigin reiðtygi sem ég tók með mér og notaði erlendis. Mér átti vitanlega að vera ljóst að ekki mætti flytja þau notuð aftur til landsins og get með engu móti réttlætt þessa yfirsjón. Vegna þessa bið ég alla sem...

Yfirlýsing vegna sóttvarna (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
LH, FHB og FT fordæma smygl á notuðum reiðtygjum og óhreinum reiðfatnaði til landsins og harma að enn ríki slíkt skilningsleysi á hættunni sem það hefur í för með sér fyrir heilbrigði hrossastofnsins. Samtökin líta þetta brot mjög alvarlegum augum í ljósi þess mikla tjóns sem “smitandi hósti” hefur valdið allri starfsemi í kringum íslenska hestinn á þessu ári, og ætti að vera öllum hestamönnum í fersku minni. Samtökin treysta því að MAST fylgi málinu eftir samkvæmt Landslögum. Að gefnu...

Ólöglegur innflutningur á notuðum reiðtygum (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust í gær við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn sem er með íslenskt skráningarnúmer var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta. Um er að ræða brot á lögum um dýrasjúkdóma og vörnum gegn þeim, þar sem skýrt er kveðið á um bann við slíkum innflutningi. Matvælastofnun lítur málið mjög alvarlegum augum enda hefði innflutningurinn falið í sér mikla hættu á að nýr smitsjúkdómur...

Þrílitur stóðhestur, Litningur frá Möðrufelli (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Næstkomandi laugardag 27. nóvember er væntanlegur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þríliti stóðhesturinn Litningur frá Möðrufelli sem mun dvelja í garðinum til áramóta. Litningur er fæddur Matthíasi Eiðssyni árið 2008 og er nú í eigu Hryllingsfélagsins sem telur 50 manns víða á landinu. Faðir Litnings er Hryllingur frá Vallanesi og móðir hans er Hrefna frá Ljótsstöðum. Litningur vakti strax mikla athygli sem folald enda er hann í senn rauðskjóttur og brúnskjóttur en slíkt hefur ekki sést fyrr...

Uppskeruhátíð Fáks 2010 (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Uppskeruhátíð Fáks verður haldin nk. laugardagskvöld og opnar félagsheimilið kl. 19:30. Sigurbjörn Bárðarson er veislustjóri og að venju svignar veisluborðið undan kræsingum. Til að skemmta okkur kemur hinn síungi Ómar Ragnarsson og svo munu dívurnar í Gospelkórnum koma öllum í stuð með söng sínum. Afreksfólk Fáks verður heiðrað og dúndrandi diskó á eftir. Húsið opnar kl. 23:00 fyrir þá sem vilja koma á ballið með okkur (frítt inn, snyrtilegur klæðnaður). Að venju er borðhaldið boðsball og...

Ekki mikið um folaldadauða í kjölfar smitandi hósta (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Folöld hafa reynst afar móttækileg fyrir þeirri bakteríusýkingu sem veldur smitandi hósta í hrossum, Streptococcus zooepidemicus, og enn ber nokkuð á veikindum hjá þessum hópi. Í mörgum tilfellum virðast þau hafa góða vörn gegn sjúkdómnum fyrstu tvo mánuðina eftir fæðingu, sem líklega má rekja til mótefna sem þau fá með broddmjólkinni. Að þeim tíma liðnum standa þau berskjölduð gagnvart sýkingunni. Alla jafna komast folöldin yfir sýkinguna af eigin rammleik en það getur tekið þau drjúgan...

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Minnum á Haustfund Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga sem haldinn verður í Hlíðarbæ fimmtudagskvöldið 25. nóvember. Fundurinn hefst kl. 20:30. Áhugaverð erindi - ræktunarbú ársins - hæst dæmdu kynbótahrossin - kaffi og kökur. Verið velkomin Stjórn HEÞ www.hryssa.is http://hestafrettir.is/Frettir/9505/

Dagur frá Strandarhöfði ekki föðurlaus (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Stóðhesturinn Dagur frá Strandarhöfði er ekki undan Baldri frá Bakka samkvæmt DNA rannsókn. Árið 2007 var sýni tekið úr Degi og ekkert svar hafði borist fyrr en fyrir nokkrum dögum síðan. Í niðurstöðu rannsóknarinnar segir að Dagur sé ekki undan Baldri en sé líklega undan skyldum hesti. Hestafréttir hafði samband við ræktanda Dags sem er Albert Jónsson. Albert sagði að það gæti verið að Dagur væri undan Bassa frá Bakka sem er undan Kjarval frá Sauðárkróki og Söndru frá Bakka þar með bróðir...

Ljóni frá Ketilsstöðum (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Ljóni frá Ketilsstöðum er 6 vetra,rauðskjóttur með 8,39 í aðaleinkunn. Hann er undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum en hún er með 8,28 í aðaleinkunn, þ.a 8,5 fyrir tölt og skeið og 9,0 fyrir brokk. Ljónslöpp er undan Snekkju frá Ketilsstöðum, sem einnig var með 1. verðlaun og Snekkja var undan Rauðku en hún var með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Rauðka var undan Ljónslöpp 1817, fædd 1939. Ekki finnst neinn kynbótadómur á henni, en hún vann gæðingakeppnina á tveimur fjórðungsmótum fyrir austan og var...

Framhaldskólanefnd hestaíþrótta (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Umsóknarfrestur er að renna út í framhaldsskólanefndina og við hvetjum framhaldsskólanema til að sækja um og taka þátt í starfinu okkar. Þeir sem svo komast áfram verða látnir vita með símtali fljótlega. Fresturinn er til komandi þriðjudags, 23.nóvember. Einhverjar spurningar beinast í síma 847-8630 – Edda Hrund. http://hestafrettir.is/Frettir/9495/

Bergur og Olil ræktunarmenn ársins (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Á ráðstefnunni Hrossarækt 2010 í gær voru þau bú sem tilnefnd voru til ræktunarverðlaunanna í ár heiðruð og ræktunarmenn ársins útnefndir. Titilinn í ár hlutu þau Bergur Jónsson og Olil Amble í Syðri-Gegnishólum en þau hafa ræktað hross þaðan og áður frá bæði Ketilsstöðum og Selfossi. Árangur þeirra í ár var frábær og kom fram í máli Guðlaugs Antonssonar hrossaræktarráðunuts BÍ að valið á búinu í ár hefði verið einfalt, svo miklir hefðu yfirburðir þeirra Bergs og Olil verið. Hann sagði...

Kiljan frá Steinnesi hæst dæmda kynbótahrossið (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Á hrossaræktarráðstefnu fagráðs í gær voru veitt ný verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahross ársins, leiðrétt fyrir aldri. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut stóðhestsins Kiljans frá Steinnesi sem hlaut í aðaleinkunn 8.71 eða 8.78 aldursleiðrétt, en Kiljan er sex vetra gamall. Kiljan er undan Kletti frá Hvammi og Kylju frá Steinnesi, Kolfinnsdóttur frá Kjarnholtum. Ræktandi Kiljans er Magnús Jósefsson í Steinnesi, en eigendur eru Halldór Þorvaldsson, Elías Árnason og Ingolf Nordal. Félag...

Þórarinn og Þóra með hæsta hæfileikadóminn (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Á hrossaræktarráðstefnunni í gær voru í fyrsta skipti afhent verðlaun, sem Félag hrossabænda gefur, til þess knapa sem sýnt hefur hross í hæsta hæfileikadóm á árinu, án áverka. Verðlaunin hlaut Þórarinn Eymundsson sem sýndi hryssuna Þóru frá Prestsbæ í 8.99 fyrir hæfileika sl. sumar. Þórarinn er hestamönnum að góðu kunnur, margverðlaunaður og prúður reiðmaður, vel að slíkum verðlaunum kominn. Þóra frá Prestsbæ er sjö vetra, undan Orra frá Þúfu og Þoku frá Hólum, en eigendur hennar og...

Kristinn Guðnason endurkjörinn formaður (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Aðalfundur Félags hrossabænda var haldinn á Hótel Sögu í gær. Til fundar mættu kjörnir fulltrúar aðildarfélaga Félags hrossabænda, auk gesta. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir flutti kveðju landbúnaðarráðherra og lagði áherslu á gildi hrossaræktarinnar í íslenskum landbúnaði og margþætt menningarhlutverk hestsins. Fleiri góðir gestir tóku til máls og svo voru skýrsla stjórnar og reikningar flutt. Rekstur félagsins er góður og verkefni þess fjölbreytt eins og fram kemur í ársskýrslunni meðal...

Íþróttamaður Andvara og efnilegustu knaparnir (0 álit)

í Hestar fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Hestamannafélagið Andvari veitti 3 viðurkenningar á aðalfundi fimmtudagskvöldið 18.nóvember. Símon Orri Sævarsson fékk viðurkenningu sem efnilegasti pilturinn frá Æskulýðsnefnd Andvara Ellen María Gunnarsdóttir fékk viðurkenningu sem efnilegasta stúlkan frá Æskulýðsnefnd Andvara. Stjórn félagsins tilnefnir íþróttamann Andvara á hverju ári og í þetta sinn var Ellen María Gunnarsdóttir valin sem íþróttamaður Andvara. Ellen María og Símon Orri eru vel að þessum viðurkenningum komin eftir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok