Toyota HiAce var stolið laust fyrir hádegi í dag fyrir utan Kennaraháskólann í Stakkahlíð. Um er að ræða afar sjaldgæft eintak enda er hann búinn farþegasætum úr flugvél og forláta gráum gardínum. Það er Aldís Sveinsdóttir sem lýsir eftir bílnum en hann tilheyrir þó Sveini Karlssyni, kennara við Langholtsskóla. Í stuttri orðsendingu sem DV barst frá Aldísi kemur fram að bíllinn hafi átt stóran þátt í félagslífi unglinga við Langholtsskóla í hartnær sautján ár og hafa ófáir nemendur við...