Aðalfundur Félags tamningamanna fer fram föstudaginn 3. desember nk. á Kænunni í Hafnarfirði og hefst kl. 18. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson verða með kynningu á nýju BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. FT félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í fundarstörfum.


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
• Fundarsetning og skipun starfsmanna fundarins • Ávörp gesta • Skýrsla stjórnar • Reikningar • Umræður um skýrslu og reikninga • Kynning - Víkingur Gunnarsson • Matarhlé • Umræður um erindi Víkings • Kosningar • Önnur mál

Víkingur Gunnarsson deildarstjóri hrossaræktarbrautar Háskólans á Hólum verður með erindi um breytt fyrirkomulag á námi við hrossaræktarbraut. Eldri nemendur skólans sem og tilvonandi nemendur eru hvattir til þess að mæta ásamt verknámskennurum og kynna sér nýtt fyrirkomulag námsins.
Boðið verður upp á kvöldverð á fundinum og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna og taka þátt í fundarstörfum

Félag tamningamanna

http://hestafrettir.is/Frettir/9518/
mbk. Böðvar Guðmundsson