Hestamannafélagið Andvari veitti 3 viðurkenningar á aðalfundi fimmtudagskvöldið 18.nóvember. Símon Orri Sævarsson fékk viðurkenningu sem efnilegasti pilturinn frá Æskulýðsnefnd Andvara Ellen María Gunnarsdóttir fékk viðurkenningu sem efnilegasta stúlkan frá Æskulýðsnefnd Andvara.

Stjórn félagsins tilnefnir íþróttamann Andvara á hverju ári og í þetta sinn var Ellen María Gunnarsdóttir valin sem íþróttamaður Andvara.
Ellen María og Símon Orri eru vel að þessum viðurkenningum komin eftir frábæran árangur á hinum ýmsu mótum s.l. vetur

http://hestafrettir.is/Frettir/9488/
mbk. Böðvar Guðmundsson