Já. Ég gómaði einu sinni litla bróður uppi í eldhúsi. Hann var búinn að opna ísskápinn og var að raða matnum á eldavélina. Eg spurði hann hvað hann væri að gera eiginlega. Hann sagðist vera í 10/11.
haha.. já… kona sem ég þekki á kött. Einu sinni fór hann inn um kjallaraglugga og kom þaðan út með hnykil og hljóp heim. Hlaupandi á eftir honum kom snaróð kona sem húðskammaði síðan eigandann fyrir að “kenna kettinum að stela”.
já ég hef einmitt verið að spá í að ryksuga þetta dýr. ;). Neinei hann fær aldrei fisk, hann er á svona spes þurrmat fyrir kisugrísi sem fara mikið úr hárum.
já, ef þú ert að meina lakkrískökur.. þá eru stífþeyttar eggjahvítur, flórsykur, lakkrískurl, rjómasúkkulaði(niðurskorið).. man samt ekki hlutföllin..ekki erfitt að finna þau held égþ
læðurnar heita kúra og embla. En Embla er svo forhert stundum að hún er oftar kölluð criminalus. fressarnir heita ólíver og snúður..en eru kallaðir ólíverk og snúðs.
það er sagt að það sé reimt á Kolviðarhóli, það var gistihús þar fyrir mörgum árum. Eigendurnir eru grafnir með syni sínum á lóðinni….en það er búið að rífa húsið fyrir sotlu síðan..veit ekki hvort það sé þess virði að fara og sjá grafir.. :)
Jólalag: happy christmas og jólahjól Hefð: hlusta á ömmu segja jólasögu meðan maturinn er að steikjast Undibúningur: fara í pakkaferðir á aðfangadag!! Matur: veit það ekki:s Drykkur: Malt og appelsín Veður: hundslappadrífa og að himininn sé annaðhvort hvítgrár eða fjólublár smákökusort: Nennukökur:) Gervi eða alvöru tré: Alvöru, grenilyktin…ahh Rjúpa eða hamborgarahryggur: hvorugt bara Maltið eða appelsínið fyrst: Malt Piparkökur eða sörur: Piparkökur Mjúkir eða harðir pakkar: bæði…harðir...
Já já…þetta er í eðli hans,ég veit það. Ég er ekki að meina að ég ætli að reyna að stoppa hann alveg, heldur að minnka þetta aðeins. Einn fugl á dag er svolítið mikið, finnst mér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..