hæhæ, það er þannig að ég á kött. Hann er yndið mitt, en vandamálið er að hann fer alveg svakalega úr hárum! Þetta er ekki vorhárlosun eins og var talað um hér fyrir neðan.
Ef maður situr með köttinn, þó ekki sé nema í smástund, þá er kominn þessi fíni hvíti feldur á fötin. Þegar honum er klappað er lófinn þakinn í hárum. Var að spá hvort eitthvað annað væri hægt að gera en að láta hann borða svona sérmat fyrir hárlos (hann er á því)
takk fyrir. :)