Ég var að hugsa um eitt… um daginn þá, í svefni þá sleit ég ALLT heila pakkið af snúrum aftan af græjunum mínum :S um morguninn þegar ég ætlaði að fara að hlusta á þær ég bara wtf?
en mér hafði dreimt það að ég væri að flytja einhvað og svo akkurat að ég myndi taka allt aftan af þeim og fara með einhert.

svo næstu nótt þa slökkti ég á einu fjöltengi inni hjá mér

og eftir nokkrar nætur heyrðu mamma og pabbi að ég væri með einhvern gauragang frammi og þá var ég að labba til og frá á ganginum en ég veit ekki hvað eg var að dreyma.

veit einhver af hverju fólk (þar með talið ég) talar, gengur og gerir fullt af hlutum í svefni, þá oftast í gegnum drauma…?