Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Næsta þema? (3 álit)

í Myndlist fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Bara að spá í hvort framtíðarþema séu listuð einhvers staðar eða hvort þið getið sagt mér hvað þema 53 er? Veit ekki hvort ég taki endilega þátt en mig vantar hugmyndir… :)

Eigið þið... (14 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 1 mánuði
DeviantART? :) Endilega póstið linkum, svona fyrir fólk eins og mig sem leiðist og hefur ekkert betra að gera. Sjálf ætla ég ekki að posta mínu þar sem það er ekkert inn á því… ég á engan skanna, aðeins webcam sem gerir myndunum ekki nógu góð skil.

Þemu (5 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Nú veit ég ekki hvernig þessum ákvarðanatökum er hagað hér en mér datt bara í hug að koma með fleiri hugmyndir að þemum fyrir stjórnendur. :) Mér dettur helst í hug: Þjóðarleiðtogar Frægir Teiknimyndapersónur Skáldsögupersónur Stríð Goðafræði(keltnesk, egypsk, rómversk, grísk, norræn; hvað sem er) Bíómyndir Náttúran Yfirnáttúrulegt Ofurkraftar Börn Útrásarvíkingar (fliss) Verkamannastéttin Konungar miðalda Þrælahald Aðall E-ð tengt yfirvaldi kirkju jafnvel? Víkingar o.s.frv… Endilega komið...

Hið íslenzka bókmenntafélag (2 álit)

í Bækur fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvar ég get keypt bækur útgefnar af þessu félagi? Veit það er svona eitthvað og eitthvað í Pennanum og helstu bókabúðum en það sem ég á við er: er hægt að fá bækur hjá forlögunum sjálfum yfirleitt? Því skrifstofa þeirra virðist vera í Skeifunni skv. www.hib.is, var að velta fyrir mér hvort það væri hægt að labba þar inn og kaupa bækur, eins og að labba bara inn í höfuðstöðvar Eddu og kaupa bækurnar þeirra þar? Takk.

Amateur (6 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Já sæl, þar sem ég er amateur hef ég spurningu fyrir ykkur sem, eins og Ameza t.d., litið myndirnar ykkar í photoshop. Hvernig farið þið að? Náiði myndinni réttri inn í tölvuna einfaldlega með skanna? Hvaða tool notiði í skyggingar? Eruði einfaldlega að lita ofan í allt með “pencil” í photoshop þegar þið eruð að lita svona myndir og tja, vafalaust með ýmsum effectum þá líka sem ég kannast ekki við? Skyggiði þá ekki pencilteikningarnar ykkar áður en þið setjið þær inn í tölvuna? Er forvitin...

Bækur? (4 álit)

í Vísindi fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Í tilefni af jólabókaflóðinu sem virðist vera að byrja í flestum bókabúðum langaði mig að spyrja, frekar hér en á /baekur, hvaða bókum þið mælið með, bókum sem tengjast vísindum og er áhugavert að lesa? Þá helst fáanlegar á Íslandi og þá á ensku, þó þið megið auðvitað nefna hvað sem er. Þá á ég við allt frá bókum með skemmtilegum staðreyndum og upp í bækur um stjörnufræði, athyglisverðar kenningar eða vísindamenn og bara hvað sem er í rauninni! Og líkt og þessi dálkur gefur til kynna, bækur...

Var að velta fyrir mér... (29 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 7 mánuðum
afhverju táningar nútímans hafa tekið upp á því að nota “víst” í kolröngu samhengi. Dæmi: “Ég fer ekki í bíó á morgun víst að Sigrún kemst ekki…” “Víst að það er svona seint þá er ég að pæla í að sleppa því” “Afhverju ertu að svara víst að þér finnst þeir leiðinlegir?” Hvað er málið, í alvöru talað? Og já ef þú ætlar að drulla yfir mig fyrir að böggast yfir málfræði annarra, gjörðu svo vel, en ekki segja að þetta sé ekki rétti staðurinn til þess… :) Nöldur á /tilveran ftw. Bætt við 14....

New Moon - Kvikmynd. (5 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Þar sem það gerist svo sáralítið á þessu áhugamáli þá langaði mig að gleða Twilight-aðdáendur með link að New Moon trailernum sem var postaður á youtube í dag, fyrir ykkur sem ekki enn hafið séð: http://www.youtube.com/watch?v=78vIchP9u9I

GB: MR-ME (14 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 1 mánuði
Ok, hversu sorglegt er að eina stigIÐ, í eintölu, sem ME fékk (fyrir utan hraðaspurningar) var…well, eitt, og snerist þar að auki um að ná fyrstur bjöllunni, því spurt var um FÁNA, halló góðan daginn. Annars óska ég MR-ingum til hamingju með sigurinn:)

Vesalings, vesalings Geir (26 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Eru ekki ööörugglega allir búnir að sjá ÞETTA? Æjj ég hálfvorkenni greyinu, allir búnir að vera að rakka hann niður og mæta fyrir utan stjórnarráðið/alþingishúsið með “NIÐUR MEÐ GEIR!” skilti og svo bara “já, halló góðan daginn, ég er með krabbamein”. Helvíti týpískt, en já…endilega, /discuss. (Veit ekkert með hvort það sé nú þegar búið að búa til svona þráð en það verður bara að koma í ljós).

Hafiði lesið... (22 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Þar sem ég er orðin ansi leið á hvað þetta áhugamál getur verið dautt, þá ætla ég að skella einum þræði hér inn. Hann er kannski ekki svo mikið til afþreyingar fyrir ykkur en mig langar að vita hvort þið hafið lesið eitthvað af þessum bókum, hvort þið mælið með þeim o.s.frv.: Percy Jackson and the Olympians. ~Cover 5 bóka sería sem á víst að fjalla um strák sem kemst að því að hann er sonur Poseidons. Hefur einhver lesið þetta? Ef svo er þá langaði mig að forvitnast fyrir hvaða markhóp þetta...

Julegaverne (82 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Hvaða bækur fengu Hugarar svo í jólagjöf? (: Sjálf fékk ég aðeins eina þetta árið, Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur. Aftur á móti fékk ég slatta af pening og gjafakortum og hyggst ég kaupa mér fleiri bækur eftir áramót. ^^ En endilega, share!

His Dark Materials (16 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Nú var ég að klára þriðju bókina í bókaflokknum í kvöld og mig fýsir að vita hvað ykkur fannst um endinn, ef einhver hefur lesið þær?? Sjálf var ég frekar ósátt við hann í fyrstu og fannst hann auk þess væminn og of lítill endir bundinn á stríðið milli Lord Asriel's followers og svo the Authority's (veit ekkert hvað það á að vera á íslensku, veit ekki einu sinni til þess að þær séu til allar í íslenskri þýðingu). Reyndar var ég svo semi búin að sætta mig við þetta í endann þó þetta sé enn...

MR bekkir grrr (16 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Okay, skrifstofa MR hefur nú verið opin í tvo daga eða eitthvað. Þeir eru nú þegar búnir að ákveða tímasetningu fyrir skólasetninguna og posta það sem fréttatilkynningu en hvernig stendur á að maður hafi ekki enn fengið að vita með hverjum maður er í bekk?? Eða er ég bara ekki að finna þetta? Fær maður kannski ekkert að vita fyrr en á skólasetningunni sjálfri? Fruss sko!

Uhmmz...? (2 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég var nú bara að spá, þið sem völduð braut og aðra braut til vara, hvernig vitið þið inn á hvora brautina þið komust? Ég valdi enga vara svo ég hlýt að hafa bara komist inn á þessa sem ég valdi, en ég er samt forvitin… :)

Hverjir ætla í MR? (53 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Nú eru væntanlega flestir búnir að fá samræmduprófs einkunnirnar sínar og það eru sennilega margir búnað segjast í hvaða skóla þeir ætla á “samræmduprófseinkannirnar” korknum. En nú er ég bara að spurja um þá sem ætla í MR, og hvaða einkunnir þið fenguð og hver var meðaleinkunnin? Annars fékk ég sjálf: Enska - 8,5 (fyrra, 9 í bæði 103 og 203, kennarinn sagði mér að jafnvel skólar með bekkjarkerfi gætu litið á þær einkunnir líka.) Danska - 8,5 Íslenska - 8,5 (ekki sátt, en svona er þetta)...

Brotajöfnur!!! (5 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Okay… …Shit. Ég er vön að kunna þetta og geta þetta auðveldlega en ég byrjaði að læra svo seint og nú er ég að reyna að komast í gegnum þetta og þetta er allt komið í graut í hausnum á mér. Með brotajöfnur sem innihalda x og annað skemmtilegt er hægt að a)gefa allri jöfnunni samnefnara b)gefa bara brotunum samnefnara *right?), c)margfalda í kross, d)þátta.. Og þetta er allt í rugli hjá mér. Það eru jöfnur eins og x+3 x+1 — + — = 5 2 3 3x x+2 – = — 2-x 2 2x+3 3x x —- + — = – x + 1 2+x 4 Hvað...

Fyrir náttúrufræðiprófið. (16 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Fyrir þau '92 módel sem eru að fara að taka samræmt próf í náttúrufræði næsta föstudag vil ég benda á þennan vef: http://www1.nams.is/kyn/index.php Undanfarin ár hefur eitthvað borið á spurningum varðandi kynsjúkdóma, þá helst einkenni einhvers ákveðins kynsjúkdóms, og hvort það sem veldur sjúkdómnum sé veira eða baktería. Eitthvað hefur verið farið í kynfræðslu í grunnskólum en mismikið samt. Ég fékk t.d. ekki bók til að lesa varðandi þetta en kennarinn benti okkur á þennan vef og mér datt...

MR-ingar? (325 álit)

í Skóli fyrir 16 árum, 1 mánuði
Nú er ég að fara í menntaskóla í haust og maður hefur svona verið að spá í hvaða skóla maður á að fara og svona… Ég tók eftir því að á þessum “Hvaða skóla?” þráð voru allnokkrir sem sögðust vera í MR, og ég er bara svona að spá hvort þið hafið eitthvað að segja um skólann? Þetta er kannski svolítið tilganglaus þráður, þá sérstaklega þar sem ég er eiginlega alveg búin að ákveða að fara í MR, en ég vildi bara fá að heyra hvernig skóli þetta væri, hvað er gott við þennan skóla fram yfir aðra...

Story Without a Name. (0 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Vinur minn gaf mér einskonar ‘jólagjöf’ í ár, hann samdi sögu handa mér, því hann veit að ég hef gaman af því að lesa það sem hann skrifar^^. Hann er Englendingur og samdi hana því væntanlega á ensku, en ég vildi bara senda hana hingað inn svo að aðrir gætu fengið að lesa hana líka. Endilega kommentið ef þið megið vera að;) ——- The night air was still and chilly, with a thick layer of dew resting upon the blades of grass and uppermost leaves in the high beechen treetops. At the foot of a few...

Eragon - þriðja bókin? (11 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Var bara svona að spá, veit einhver hvenær fjandans bókin kemur út? enska útgáfan s.s. Á maður að bíða endalaust eða:P…? Frekar langt síðan nr. 2 kom út, keypti hana á ensku einhvern tíma í Svíþjóð örugglega í júní 2006.. Veit einhver eitthvað um þetta?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok