Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bananarass
bananarass Notandi frá fornöld 34 ára karlmaður
184 stig
Guð blessi trúleysið

Hann heimur (4 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Himinn og haf hæstu hæðir, dýpstu botnar sem yfir mér gnæfa og undir ólga. Himinn og haf reita mig í sundur heimurinn torskilinn Himinn og haf geta á mig sótt og sært hafa þó ekki völdin. Og ég á mér griðarstað einhversstaðar mitt á milli. Þar tel ég ástina eins og blöð af blómi.

Benny Hinn rúnkar sér (66 álit)

í Heimspeki fyrir 15 árum, 4 mánuðum
BENNY HINN RÚNKAR SÉR. Greinarkorn þetta er skrifað sem hugleiðingar en ekki áróður. Það er von undirritaðs að þeir sem viðkvæmir eru fyrir trúarrausi virði það og jafnvel sleppi því að lesa neðangreindan texta. Forsenda og efnistök þessara hugmynda eru að mestu leiti sóttar í guð kristinna manna. “Það sem hægt er að fullyrða án sannana er einnig hægt að vísa á bug án sannana.” - Christopher Hitchens Ok, byrjum bara á byrjun. Ég get sagt með ósvertri tungu að það ekkert sé í hinum efnislega...

Um bensínmótmæli: Óður til lögregluvaldsins (21 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum
Ég ætla að benda á stöðu lögreglunnar í þessu samhengi. 1. Lögreglan er eina embættið í landinu sem hefur fullt leyfi til að beita valdi ef þörf krefur. Fólk á það til að gleyma þessu og halda bara að lögreglan sé bara einhverskonar lukkudýr framkvæmdavaldsins, sem þeir eru ekki. Þess vegna hefur hún græjur eins og Piparúða, kylfur, skyldi og lítið hugtak sem kallast réttur til handtöku. Ef eitthvað fer úr böndunum og hugsanlegt er að það stigmagnist er það í þeirra verkahring að beita valdi...

Efasemdir: Örstutt samansafn hugleiðinga (115 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 1 mánuði
Þetta er skrifað sem hugleiðingar, ekki áróður. Ég vona að þeir sem eru viðkvæmir fyrir svona trúleysis rausi virði það og jafn vel bara sleppi því að lesa þetta. Þessar hugmyndir eru að mestu leiti skrifaðar út frá guð kristinna manna. Ok, byrjum bara á byrjun. Ég get sagt með ósvartri tungu að það sé ekkert í heiminum sem mögulega væri hægt að skilgreina sem guð. Eða yfirnáttúrulegt fyrirbæri ef því er að skipta. Þetta get ég fullyrt, rétt eins og hinn trúaði, sem situr gegnt mér, getur...

Frosinn sandkassi (8 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Andskotinn. Ég hef týnt nýju skóflunni minni. Fallega rauða skóflan mín sem ég fékk í sumargjöf frá ömmu. Hún hafði þjónað sínum tilgangi í allt sumar. Nú er hún á bak og burt. Ég veit, eins og flestir á mínum aldri, að flestar sandkassaskóflur eru á sama gæðaskala en gæðin hafa ekkert með þessa að gera. Ég unni þessari skóflu mjög. Þessi skófla sem ég er með núna fékk ég bara að láni, hún er brotin í báða enda og bognar eins og lakkrísrör. Svo er sandkassinn svo gaddfreðinn hvort eð er að...

Vandræði listsköpunarinnar... (8 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Film as dream, film as music. No art passes our conscience in the way film does, and goes directly to our feelings, deep down into the dark rooms of our souls. Þessi orð lét leikstjórinn Ingmar Bergman falla um kvikmyndagerð. Sá maður kemur hreint ekki af tómum kofanum þegar kemur að kvikmyndagerð. Bergman hefur óumdeilanlega haft talsverð áhrif á kvikmyndagerðamenn um allan heim. Hann hafði líka lög að mæla, góð kvikmynd getur haft áhrif. Fáar listgreinar geta haft jafn stórkostleg áhrif á...

Tóm (5 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Þetta er saga sem ég fékk hugmynd að eftir áskorun um að skrifa mjög dramantíska sögu. Hef ekki haft mikinn tíma í að lesa hana yfir en þig dæmið hana þá bara eins og hún kemur fyrir hér. Hún haltraði að glugganum. Blikkandi flúorljósið sem hékk á veggnum fyrir aftan hana hafði varla undan að lýsa upp kolmyrkvað herbergið. Þar sem hún stóð, reyndi hún að beina hugsunum sínum frá þessum síðustu og verstu andartökum lífs síns. Í hennar huga hafði þessi dagur ekki risið, heldur stóð tíminn og...

Æ, þetta Guð... (18 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Stundum þegar ég ligg á sveitta lakinu mínu í myrkrinu. Stundum, í mjög myrkvaðri kompunni, sem mamma kallaði einu sinni herbergið mitt, hugsa ég of mikið. Ég hugsa langt fram úr mér. Já þegar ég ligg þarna og get varla séð hvort ég sé klæddur eða ekki, þá hef ég stundum áhyggjur af því að blokkin mín gæti hrunið. Skiluru, bara allt í einu. Ég bý á fyrstu hæð í blokk. Af hverju gætu hæðirnar fyrir ofan ekki komið á blússandi siglingu niður með aðdráttarafli jarðar og skyndilega umbreyst úr...

Gandalf (4 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mér datt í hug, eftir að hafa séð greinina um málun Lurtz að segja hvernig gott er að mála Gandalf.(Styttuna með hattinn) 1:(Fötin) Þú byrjar á því að undercoda hann svartann.Svo málaru fyrst kápuna með því að næstum drybrusha hana með Fortress grey. Þegar þú málar hattinn geriru það bara með Shadow grey.(Lýsir hann kannski með léttu drybrushi af Fortress grey.Af því að hann er svoldi bláleitur. 2:(húð og hár)Til að mála skeggið blandaru Fortress grey og smá hvítum.Svo notar þú Bronzed flesh...

Gítarleikari af guðs náð! (21 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Seattle í Bandaríkjunum hefur alið af sér marga góða rokkara.T.d Nirvana, Pearl jam og Pixies. Frægðarhljómi þeirra fölnar þó í samanburði við frægasta rokkara frá Seattle, Jimi Hendrix.(kannski eru þið ósammála) Jimi Hendrix fæddist í Seattle 27. nóvember 1942. Hann var af fátæku verkafólki kominn og átti stormasama barnæsku. Hann gekk í herinn og var sendur til Víetnam í upphafisjöunda áratugsins. Þar kynntist hann þeim anda uppreisnar og frjálsræðis sem sveif yfir á þeim tíma. Hendrix...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok