Argh, nú er ég brjálaður. Ég fór niðrí bæ núna áðan með bækurnar mínar sem ég ætlaði að selja. Það var sama hvert ég fór, enginn vildi kaupa þær. Þegar ég labbaði inn í herbergið mitt aftur með nákvæmlega sömu bækur og ég fór út með sveið mér mest sú staðreynd að bækurnar eru keyptar á 40% andvirðis nýrrar bókar af nemendum og seldar á 60% til nemenda aftur. Nemendafélögin ættu að taka sig til og reyna að standa vörð um hag nemendanna en ekki bara að standa fyrir fylleríissamkomum og...