Ég hef einmitt heyrt þetta um skólan, hversu lélegur hann sé. Ég veit í raun og veru ekki um neinn sem finnst hann góður og ég sé að allir á huga eru greinilega sammála. Ég ákvað bara að fara öruggu leiðina, fara á stærðfræðibraut í menntó, og svo í háskólann. Kannski út eftir BS námið í Master nám. Eftir að hafa klárað BS hvað þá master, geturu valið um vinnu. Fyrirtæki eru að berjast um háskólamenntað fólk. Þetta er nátturlega leið sem tekur 8 ár en hún er meira en gulltryggð.