Jæja enn og aftur leita hjálpar ykkar hugaða manna. (ég er alveg ómögulegur í þessu, en er að reyna að læra ;).

Það sem ég er að reyna að gera núna er að sækja inngang fyrir grein í grunninum sem hefur ákveðið ID.

Ég er með breytu sem sækir ID-ið úr Addressunni grein.asp?id=9
- articleID=request.Querystring(“id”)

Síðan hef ég
- getArticle=“SELECT inngangur FROM tafla WHERE ID=articleID”

En þá fæ ég upp villuskilaboðin
—————————————-
Microsoft OLE DB Provider for ODBC Drivers error ‘80040e10’

[Microsoft][ODBC Microsoft Access Driver] Too few parameters. Expected 1.
—————————————-

Það virkar að setja
- getArticle=“SELECT inngangur FROM tafla WHERE ID=9”

Og þá fæ ég upp grein 9, þannig að það er eitthvað rétt þarna, en hún virðist ekki leyfa mér að nota breytu.

Er ég að hugsa þetta eitthvað vitlaust kannski.

Getur einhver hjálpað…
kv.
ask