Jæja, Senninha kom þarna með frétt sem enginn skildi upp né niður í. Ég held nú samt að ég hafi lúmskan grun um hvað þessi frétt er um. Þarna voru þrjú orð sem ég skildi: Microsoft, Linux og FBI og ég nokkuð viss að FBI tengist ekki lénamöstrum, eins og Senninha sagði að fréttin fjallaði um. Ég hef á tilfinningunni (því ég skil ekki hálft orð í rúmensku) að þetta sé um að Microsoft sé að reyna gera windows að open source, svona meira í áttina að Linux. Held ég hafi lesið grein um það í...