Gerum fyrst og fremst ráð fyrir að fólk sé komið upp á lagið með svar-kerfið hér á huga. Að því söðgu, þá er ég klárlega ekki að tala við þig, engin þörf á hugsanarlestri, spákonum eða galdraköllum til að finna það út. Hefði ég verið að tala við þig hefði ég sagt að “þú” værir frá selfossi og að “þú” gætir ekkert að þessu gert. Vissulega kjósa þó sumir að svara, sér í lagi ef svar þeirra á að vera niðrandi, með því að ávarpa viðkomandi í 3. persónu. Þetta er þó langt frá því að vera algilt....
Sigur Rós, Botnleðja, Jet Black Joe, og svo er hrúga af efnilegum neðanjarðarböndum sem vert er að fylgjast með: Jan Mayen, Tony the Pony, Han Solo, Lada Sport, svo fáeinar séu nefndar.
Issss… mér finnst bara ekkert skrýtið að íslensku/tölvukennarinn ykkar hafi gefist upp á ykkur. Þessi stafsetning myndi láta stærðfræðikennara gefast upp á ykkur.
Æi, OooooOOOOooo… vildi að skrínsjottin í tölvunni minni virkuðu. Hefði viljað skella inn screenshot af C4 brjálæðinu mínu í Sharqi fyrr í dag. Það var gaman. Ha? Var það ekki strákar?
Hlustaðu á Tuma. Hann veit hvað hann er að fara. Gáfaðasti og víðförlasti BF spilari allra tíma, og þótt víðar væri leitað. Þ.e. út fyrir alla tíma. 4. víddin og eitthvað. Svo merkilegur er hann nú. Æi, en já.. ég hlakka ekkert ógeðslega mikið til. Það er alveg verið að hrúga úr mér 2-3 jöxlum. Þarf að fara að hamstra parkódín áður en það verður lyfseðilsskylt og svo skítamixa einhvers konar handfrjálsan klakabúnað til að leggja upp við kinnarnar eftir aðgerðina. :(
Ok, segjum sem svo að ég væri 14 ára en ætti afmæli í febrúar. Fyndist þér ekkert athugavert við það að ég segðist 15 ára, því 15 ára afmælið mitt er nær deginum í dag en 14 ára afmælið mitt? Ég veit það ekki, en ég skilgreini þetta sem kjánaheit. Af fyrstu gráðu. Fyrstu gráðu kjánaheit.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..