Já, mér finnst til dæmis kærastinn minn vera eitt mesta yndi í heimi og hann varð bara smá “fúll” þegar ég sagði honum einu sinni að hann væri krúttlegur og sagði “Ég vil ekkert vera krúttið í sambandinu, þú ert krúttið” Hann kyssti reyndar mig svo á nebbann sem gerði hann bara enn meira krúttlegri (sagði honum það reyndar ekki í það skiptið) En ég meina af hverju geta báðir aðilarnir ekki bara verið krúttlegir? Skil ekki af hverju það er eitthvað “niðrandi” að vera strákur og vera kallaður krútt.