hæ!
ókei ég kynntist strák sem ég var að vinna með og fanst hann mjög sætur. Svo vorum við búin á sama tíma og byrjuðum að kyssast og eitthvað.

Nokktrum dögum seinna finn ég það út að hann átti kærustu og þau voru búin að vera saman í ár.
Ég spyr hann útí þetta og hann segir: “þetta er allt í lagi, hún hélt framhjá mér.”
Mér fanst það ekki beint í lagi og hætti að tala við hann utan vinnu. Svo frétti ég líka að hann hefði kysst aðra stelpu sem var að vinna með mér á meðan hann var á föstu.

Svo hringir hann í mig og segir að þau séu hætt saman og einhvernveginn endar það á því að ég bauð honum í eitthvað partý. Þar talaði hann mjög lítið við mig og kyssti bestu vinkonu mína. Ég kyssti reynar besta vin hans líka, en það var bara afþví að hann(vinur minn semsagt) sagði mér að gera það og ég var ekki í mjög góðu ástandi.

Svo gekk þetta bara svona: hann hringdi í mig og sagði hvað honum langaði mikið í mig og svo kom hann í einhver partý sem ég vissi um og reyndi við vinkonur mínar.

Núna allt í einu sendi hann mér sms hvort ég væri hrifinn af honum, bara beint út. Ég sagðist vera smá heit fyrir honum. Þá sagði hann: “ókei, ég er hrifinn af bestu vinkonu þinni”. Þá frétti ég að hann væri búinn að ofsækja hana í 1-2 vikur. En hún sagði alltaf nei og hann hélt að það væri bara útaf mér. Þá byrjaði hann að segja mér að koma til sín í nótt og eitthvað.

hvað er að? ég bara get ekki skilið þennan strák! það er bara ekki hægt!
bleeeller!