Ég hef mjög gaman af því að fletta í gegnum bókatíðindi og skrifa niður hvaða bækur ég vil lesa. Ég merkti við 19 bækur núna, en það eru ekki bækur sem ég vil “nauðsynlega” lesa, bara svo ég hafi nú eitthvað að gera um jólin. Alveg sammála með Stravaganza, ég er búin að bíða spennt eftir næstu bók síðan 2005, ætli ég verði ekki að taka hana á ensku eins og allir aðrir. Og Myrká, mig langar líka til að lesa hana, enda er hún á listanum yfir jólagjafir í ár ;d